Leikskólakennarar mótmæla kynbundnum launamun og loka leikskólum

Foreldrar og þá helst feður, eru beðnir um að sækja börn sín snemma á mánudaginn vegna kvenna­frídagsins. Konur eru hvattar til að leggja niður störf kl. 14.38 og mæta á samstöðu­fund á Austur­velli.

Kynbundinn launa­munur er enn staðreynd í íslensku samfélagi og á mánudaginn á að grípa til aðgerða. Aðgerðirnar geta haft víðtæk áhrif á samfélagið, en nú þegar hafa sumir leik­skólar í Reykjavík óskað eftir því að foreldrar sæki börnin snemma á mánudag. Er þeirri ósk sérstak­lega beint að feðrum barnanna. 

Á mánudag eru 41 ár síðan 25 þúsund íslenskar konur lögðu niður störf og fylktu liði á Lækjar­torg með það að markmiði að sýna fram á mikilvægi vinnu­framlags kvenna. Í ár stendur til að endurtaka leikinn og hvetja samtök launa­fólks og samtök kvenna konur til að leggja niður vinnu kl. 14.38 á mánudaginn og mæta á samstöðu­fund á Austur­velli kl. 15.15. Á fundinum verður kynbundnum launamun mótmælt og vanmati á störfum kvenna. 

 „Við þurfum að minna á að við konur erum ekkert að þagna og sýna þann mátt sem býr í kvenna­samstöðunni. Við viljum kjara­jafnrétti strax og við hljótum að geta náð til tugþúsunda kvenna. Þetta er málefni okkar allra, hvort sem er ungra, miðaldra eða eldri kvenna. Að sjálfsögðu hvetjum við líka alla karla til að mæta,“ sagði Maríanna Trausta­dóttir, sérfræðingur í jafnréttis- og umhverfis­málum hjá ASÍ, og ein margra kvenna sem koma að skipulagningu viðburðarins, í samtali við Stundina fyrr í mánuðinum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár