Kirkjugarður í vaxtavanda

Tekið var lán til að stækka kirkju­garð sem var að fyllast, en vaxta­kostnaðurinn sligar sóknar­nefndina.

Kálfatjarnarkirkja
Kálfatjarn­ar­kirkja Reist 1893 og er ein stærsta sveita­kirkja á land­inu. Mynd: Kirkjukort

Sóknar­nefndin í Kálfa­tjarnar­kirkju á Vatnsleysu­strönd er í fjárhags­vandræðum vegna vaxta­kostnaðar. Sóknar­nefndin óskaði á dögunum eftir fjár­stuðningi frá Sveitar­félaginu Vogum vegna vaxta­kostnaðar láns sem tekið var í tengslum við stækkun kirkju­garðsins að Kálfa­tjörn. Erindi gjaldkera Kálfa­tjarnar­kirkjugarðs var tekið fyrir á fundi bæjar­stjórnar Voga en afgreiðsla málsins var ekki sú sem sóknar­nefndin hafði sóst eftir því ekki var hægt að verða við erindinu. Sóknar­nefndin þarf því að finna aðrar leiðir til þess að greiða vaxta­kostnaðinn en ekki er vitað hversu hár hann er.

Kirkjugarðurinn að fyllast

Það var fyrir rúmum þremur árum síðan sem sóknar­nefndin ákvað að ráðast í stækkun á kirkju­garðinum en samkvæmt formanni sóknar­nefndarinnar, Símoni Rafnssyni, voru laus pláss af afar skornum skammti. Því hafi einfald­lega ekki annað verið í stöðunni en að stækka. En hvernig ætlar sóknar­nefndin að afla fjár svo hægt sé að greiða vaxta­kostnaðinn?

„Við urðum að gera þetta“

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár