Kína Kína

Stafræna alræðisríkið Kína handan við hornið

Kín­verski komm­ún­ista­flokk­ur­inn vinnur nú að því að byggja upp gagna­grunn sem geymir upp­lýs­ingar um nethegðun allra Kínverja. Mark­miðið er að gefin verði stig fyrir það sem flokk­ur­inn álítur jákvæða hegðun en refsi­stig fyrir hitt sem talið er vera nei­kvætt. Yfirvöld stefna á að kerfið verði til­búið árið 2020.

Ímyndaðu þér fram­tíð þar sem allt sem þú gerir á inter­net­inu endar í mið­lægum gagna­grunni. Heim þar sem ríkið gefur þér ein­kunn fyrir hvert ein­asta skref sem þú tekur í netheimum. Vinirnir sem þú eign­ast, fötin sem þú kaupir, sam­ræð­urnar sem þú átt, tón­listin sem þú hlustar á, allt er þetta vegið og metið sam­kvæmt fyr­ir­fram gef­inni reikni­for­múlu. Þeir sem skora hátt í þessum veru­leika eru verð­laun­aðir. Þeir eiga þess kost að ferð­ast hvert sem hug­ur­inn girn­ist auk þess sem þeir fá for­gang hjá stofn­unum rík­is­ins.

Hinir, sem sögðu ef til vill eitt­hvað rangt eða eyddu pen­ing­unum sínum í áfengi og tölvu­leiki, enda aft­ast í röð­inni. Ferða­frelsi þeirra er tak­markað og aðgengi að afþr­ey­ingu er veru­lega skert. Þetta þarf ekki að vera fjar­lægur vís­inda­skáld­skapur. Einhvern veg­inn svona er hug­myndin um félags­hæf­is­mats­kerfið [e. social credit system] sem kín­versk yfir­völd vinna nú að því að koma á fót á lands­vísu fyrir lok árs 2020.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Persónuverndarmál

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár