Íslenskur liðsforingi í flugrekstri í Litháen

Garðar Forberg ólst upp í Lúx­em­borg, stund­aði mennta­skóla­nám á Íslandi en flutti svo til Þýska­lands þar sem hann lauk liðs­for­ingja­námi. Síðan hefur hann unnið fyrir íslensku frið­ar­gæsl­una, meðal ann­ars í Kosóvó og Afganistan, en und­an­farin ár hefur hann rekið flugleigu í Litháen. Fyr­ir­tækið sem hann rekur á fjórtán þotur sem það leigir út og var að stofna annað félag í Dóminíska lýð­veld­inu.

Íslenskur liðsforingi  í flugrekstri í Litháen

Garðar heill­að­ist ungur af hernum og er einn af fáum Íslend­ingum sem hafa farið í liðs­for­ingja­nám, kannski vegna þess að faðir hans var í amer­íska hernum upp úr 1950. Hann hefur átt heldur óvenju­legt lífs­hlaup þar sem hann hefur starfað á fram­andi slóðum við fram­andi aðstæður og upp­lifað margt sem minnir helst á bíó­mynd.

Garðar er sonur Elínar Hans­dóttur og Garðars Forberg flug­virkja, fæddur á Íslandi en alinn upp í Lúx­em­borg frá nokk­urra mán­aða aldri, með tveggja ára við­komu í Banda­ríkj­unum, áður en leiðin lá aftur til Íslands í Versl­un­ar­skól­ann og þaðan til Þýska­lands í liðs­for­ingja­nám.

Þegar Garðar var í Versl­un­ar­skól­anum að velta því fyrir sér hvað hann ætti að gera í fram­tíð­inni fannst honum liðs­for­ingja­námið spenn­andi, kannski vegna her­reynslu föð­ur­ins. Líka vegna þess að aðeins örfáir Íslend­ingar fara í slíkt nám og hann ímynd­aði sér að eftir námið myndi hann starfa við eitt­hvað tengt varn­ar­málum á Íslandi …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár