Áfellisdómur ESA: Á Íslandi viðgengst mismunun á grundvelli þjóðernis

Regla um að ein­ungis einn erlendur körfu­bolta­maður megi vera inni á vell­inum í einu brýtur í bága EES samn­ing­inn. Eft­ir­lits­stofnun EFTA hefur sent form­legt erindi til utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Áfellisdómur ESA: Á Íslandi viðgengst mismunun á grundvelli þjóðernis
Fengu erindið í gær Utan­rík­is­ráðu­neyt­inu hefur borist form­legt bréf frá eft­ir­lits­stofnun EFTA þar sem það er meðal ann­ars rakið hvernig erlendum körfuknatt­leiks­mönnum er mis­munað á grund­velli þjóð­ernis hér á landi. Mynd: Af vef utanríkisráðuneytisins

Körfu­bolta­mönnum af erlendu bergi brotnu er mis­munað hér á landi á grund­velli þjóð­ernis. Þetta er mat Eft­ir­litts­stofn­unar EFTA, ESA, sem hefur sent íslenska utan­rík­is­ráðu­neyt­inu tólf blað­síðna bréf þar sem fram kemur að reglur Körfuknatt­leiks­sam­bands Íslands, KSÍ, um erlenda leik­menn brjóti reglur EES samn­ings­ins um bann við mis­munun á grund­velli þjóð­ernis.

Um er að ræða hina svoköll­uðu 4+1 reglu sem kveður á um að lið megi ein­ungis vera með einn erlendan leik­mann inni á vell­inum í einu. Við­mæl­endur Stund­ar­innar innan körfuknatt­leiks­hreyf­ing­ar­innar segja málið í heild sinni ákveð­inn skell fyrir hreyf­ing­una alla.

 

Óhætt er að segja að í bréfi ESA felist ákveð­inn áfell­is­dómur yfir Körfuknatt­leiks­sam­bandi Íslands og ekki síður íslenskum stjórn­völdum en með því að við­halda slíkri reglu hafa grund­vall­ar­mann­rétt­indi verið fótum troðin um ára­bil. Það var í ágúst í fyrra sem ESA barst kvörtun vegna ólög­legrar mis­mun­unar á grund­velli þjóð­ernis sem við­geng­ist á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ESB

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár