Bjarni for­sæt­is­ráð­herra Íhalds­sami auð­mað­ur­inn Bjarni Bene­dikts­son hefur náð æðstu valda­stöðu lands­ins og leggur áherslu á að verja rík­andi fyr­ir­komu­lag. Mynd: Pressphotos

Hinn ósnertanlegi

Fyrir hvað stendur for­sæt­is­ráð­herra Íslands og hvað drífur hann áfram? Karl Th. Birg­is­son greinir feril og áherslur Bjarna Bene­dikts­sonar, sem sýndu sig á fyrstu árum þing­mennsk­unnar. Hann var afkasta­lít­ill á Alþingi og lagði höf­uð­á­herslu á að leggja niður rík­is­stofn­anir. Þá vildi hann minnka aðkomu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins að fyr­ir­tækja­sam­r­unum.

Við höfum fengið nýjan for­sæt­is­ráð­herra, Bjarna Bene­dikts­son, for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Hvers vegna er Bjarni í stjórn­málum? Hvað knýr hann áfram? Hefur hann hug­sjónir? Hvað brennur á honum?

Skoðun á ferli og mál­flutn­ingi Bjarna kallar því miður fram svörin: Hagsmunagæzla. Varð­staða um óbreytt ástand. Nei. Og fátt.

Þar með er ekki sagt að Bjarni sé ómerki­legur stjórn­mála­maður. Hann hefur til dæmis farið í gegnum og staðið af sér fleiri hneyksl­is­mál og atlögur innan úr flokknum sínum en flestir aðrir hefðu sloppið lif­andi frá.

Hann hefur verið nán­ast teflon-húð­aður, eins og sagt var um Ronald Reagan, og nú þegar hann hefur náð upp­haf­legu og lang­þráðu mark­miði sínu, að verða for­sæt­is­ráð­herra, virð­ist hann vera alveg ósnert­an­legur.

Lítum aðeins á mann­inn og fer­il­inn.

Óvænt framboð

Bjarni var fyrst kjör­inn á þing í kosn­ingum vorið 2003, þrjá­tíu og þriggja ára gam­all. Framboð hans kom ýmsum á óvart. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár