Hallgrímur um nauðgunina: „Ég var bálreiður fyrstu dagana á eftir“

Hall­grímur Helgason segir frá því þegar honum var nauðgað af ókunn­ugum karl­manni á hót­el­her­bergi í Flórens í nýrri skáldævi­sögu. Hann seg­ist hafa fundið fyrir skömm og verið reiður út í sjálfan sig fyrir að vera svona sak­laus og blá­eygur. Í dag finnst honum frelsandi að hafa stigið fram og sagt frá ofbeld­inu.

Hallgrímur um nauðgunina: „Ég var bálreiður fyrstu dagana á eftir“

„Það var eins og ég hefði stígið út úr líf­inu í hálf­tíma. Þetta gerð­ist ekki,“ segir Hall­grímur Helgason rit­höf­undur um nauðg­un­ina sem hann varð fyrir þegar hann var 22 ára. Ger­and­inn var ókunn­ugur karl­maður í erlendri borg. 

Hall­grímur segir meðal ann­ars frá þess­ari lífs­reynslu í skáldævi­sög­unni, Sjó­veikur í München, sem kom út fyrr í mán­uð­inum. Bókin fjallar um níu mán­uði í lífi Hall­gríms þegar hann var nemi í Lista­aka­dem­í­unni í München í Þýska­landi. Þar lýsir hann því þegar hann í sak­leysi sínu þáði auka­rúm á hót­el­her­bergi ókunn­ugs fólks þegar hann var á ferða­lagi í Flórens á náms­ár­unum. Þegar Hall­grímur hafði lagst til hvílu skreið ókunn­ugi mað­ur­inn nak­inn upp í rúm til hans og braut á honum. 

Skrímsli sem leynist í mörgum karlmönnum

Eftir nauðg­un­ina seg­ist hann hafa farið í djúpa afneitun. Varn­ar­við­brögð sál­ar­innar hafi verið að láta eins og ekk­ert hefði gerst. Hann seg­ist hafa fundið fyrir skömm og reiði. „Ég var bál­reiður fyrstu dag­ana á eftir. Reiður út í þessa borg, Flórens, þar sem þetta gerð­ist. Reiður út í Karlinn, með stórum staf. Ég hef stundum fengið tæki­færi til að fá útrás fyrir þá reiði í bók­unum mínum þar sem ég gagn­rýni karl­mennsk­una og þetta skrímsli sem leyn­ist í mörgum karl­mönnum. Og þögn­ina sem hjálpar þeim að vaða áfram í líf­inu og hjálpar þeim að ger­ast frekir. Þögnin hefur verið sér­stak­lega áber­andi hérna á Íslandi þar sem menn hafa kom­ist upp með nán­ast hvað sem er hvenær sem er. Þannig þetta er inn­gróið í okkar menn­ingu. Karlar þumb­ast áfram og litlar nauðg­anir fara fram, en ekki bara í svefn­her­berg­inu heldur líka í efna­hags­líf­inu hér og þar, allan dag­inn.“

Þá seg­ist hann hafa verið reiður sjálfum sér fyrir að hafa verið svona naívur. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár