Hægri stjórn með Bjartri framtíð formlega í myndun

Bjarni Bene­dikts­son hefur við­ræður við Óttarr Proppé og Benedikt Jóhann­es­son. Líklegt er að skatta­lækk­anir fylgi nýrri rík­is­stjórn.

Hægri stjórn með Bjartri framtíð formlega í myndun
Bjarni Bene­dikts­son Leiðir við­ræður um nýja rík­is­stjórn. Mynd: Pressphotos

Form­legar við­ræður um myndun nýrrar rík­is­stjórnar hægri flokk­anna Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Viðreisn, ásamt miðju­flokknum Bjartri fram­tíð, eru nú hafnar. 

Líkur eru á því að um verði að ræða hægrisinn­uð­ustu rík­is­stjórn lýð­veld­is­sög­unnar, eins og Stundin greindi frá í lok októ­ber. Aldrei áður hafa tveir hægri flokkar leitt rík­is­stjórn á lýð­veld­is­tíma Íslands, en sam­an­lagt fengu Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Viðreisn tæp­lega 40 pró­sent atkvæða í alþing­is­kosn­ing­unum. Líklegt er að skatta­lækk­anir og aðhald í opin­berum rekstri verði nið­ur­staðan af slíku rík­is­stjórn­ar­sam­starfi, þótt aukin opin­ber fjár­fest­ing virð­ist óum­flýj­an­leg eftir afar lágt fjár­fest­ing­ar­stig síð­ustu ára og þrátt fyrir rík­is­fjár­mála­á­ætlun Bjarna Bene­dikts­sonar sem gerði ráð fyrir áfram­hald­andi aðhaldi.

Til­kynn­ing um form­legar við­ræður flokk­anna þriggja barst frá for­seta­emb­ætt­inu rétt í þessu. „Forseti Íslands Guðni Th. Jóhann­es­son átti í dag, föstu­dag­inn 11. nóv­em­ber 2016, fund með Bjarna Bene­dikts­syni, for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, um gang við­ræðna hans við for­ystu­menn ann­arra stjórn­mála­flokka. Formaður Sjálf­stæð­is­flokks­ins tjáði for­seta að ákveðið hefði verið að hefja form­legar við­ræður full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar um myndun rík­is­stjórnar sem nyti stuðn­ings meiri­hluta á Alþingi.“

Óttarr og BenediktFormenn Bjartar fram­tíðar og Við­reisnar mynd­uðu banda­lag um stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður og mættu saman á fund Bjarna Bene­dikts­sonar eftir kosn­ingar.

Fram hefur komið und­an­farna daga að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hafi verið lítið bjart­sýnn á nið­ur­stöður óform­legra við­ræðna við Viðreisn og Bjarta fram­tíð. Óttarr Proppé, for­maður Bjartar fram­tíðar, hefur vísað til þess að langt sé á milli Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Bjartar fram­tíðar. Í kjöl­far umræðu um að stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boðið yrði flutt til Vinstri grænna hafa flokk­arnir nú tekið af skarið.

Sambærileg stefna

Stefna Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Við­reisnar eru í grund­vall­ar­at­riðum keim­líkar, þótt Viðreisn sé minna íhalds­söm en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn. Björt fram­tíð hefur til­tölu­lega sveigj­an­lega og opna stefnu en er nær Viðreisn en Sjálf­stæð­is­flokknum.

Bæði Viðreisn og Björt fram­tíð eru hlynnt aðild­ar­við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið, en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ekki. 

Þá eru Viðreisn og Sjálf­stæð­is­flokkur hlynnt lækkun skatta. Einn nýrra þing­manna Við­reisnar, Pawel Bartoszek, telur til dæmis að skattar séu í reynd ofbeldi. Björt fram­tíð vill ein­falda skatt­kerfið, sem fellur vel að stefnu Bjarna Bene­dikts­sonar í fjár­málu­ráðu­neyt­inu.

Líklegt er að nýrri rík­is­stjórn fylgi aukin einka­væð­ing og einka­rekstur, til dæmis í heil­brigð­is­kerf­inu. Eitt af áherslu­málum Við­reisnar er: „Beitt verði mark­aðs­lausnum við þjón­ustu við borg­ar­ana“. Heil­brigð­is­mál er ein helsta stoð þjón­ustu rík­is­ins við borg­ar­ana. „Ríkið á að draga sig út úr sam­keppn­is­rekstri eða gefa einka­að­ilum kost á að starfa sam­hliða hinu opin­bera, til að auka sam­keppni og ná fram hag­ræð­ingu. Mark­miðið á alltaf að vara að tryggja góða þjón­ustu fyrir almenn­ing með sem lægstum til­kostn­aði,“ segir í stefnu Við­reisnar.

Stefna Bjartrar fram­tíðar er flokkuð niður í: „Meiri fjöl­breytni, minni sóun, minna vesen, meiri sátt“. 

Björt fram­tíð og Viðreisn hafa sam­bæri­legar áherslur varð­andi breyt­ingar á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu og land­bún­að­ar­kerf­inu. Báðir flokkar vilja auka áherslu á mark­aðs­leið í úthlutun afla­heim­ilda, en ein útfærsla þess er upp­boðs­leiðin svo­kall­aða. Hvorugur flokk­ur­inn hefur hins vegar veru­lega afger­andi afstöðu um útfærslur leið­ar­innar.

„Mark­aðstengt afgjald verði tekið upp fyrir nýt­ingu auð­linda í almanna­eigu. Afgjaldið nemi að lág­marki þeim umhverfis­kostn­aði sem nýt­ingin veldur,“ segir í stefnu Við­reisnar.

Björt fram­tíð vill að sátt verði sköpuð um fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfið með því að „arð­ur­inn renni til þjóð­ar­innar“ og að „greinin njóti góðra skil­yrða til að skila hagn­aði“. Stefna Bjartrar fram­tíðar virð­ist hins vegar sveigj­an­leg: „Það þarf að gera með gagn­gerri end­ur­skoðun núver­andi veiði­gjalda­kerfis eða upp­boði á afla­heim­ildum með skil­yrðum sem tryggja m.a. nægi­legan var­an­leika og rekstr­ar­ör­yggi hjá þeim sem gera út og stunda fisk­vinnslu og koma í veg fyrir of mikla sam­þjöppun og tryggja raun­veru­lega og virka sam­keppni um afla­heim­ildir Við teljum að rétt sé til að byrja með að nota báðar aðferðir, þ.e. veiði­gjöld og upp­boð, þ.e. úthluta hluta fisk­veiði­kvóta með þeim aðferðum sem nú er gert en með end­ur­skoð­uðum veiði­gjöldum og úthluta hluta kvót­ans á grund­velli upp­boða. Eins og t.d. þegar afla­mark er aukið veru­lega frá fyrri fisk­veiði­árum og í nýjum teg­undum. Þannig megi líka meta kosti og galla þess­ara aðferða og sníða af þeim ann­marka áður en var­an­legu kerfi verður komið á. “

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn styður kvóta­kerfi í núver­andi mynd og hefur lagst gegn hækkun veiði­gjalda.

Talsmenn atvinnulífsins áberandi

Bjarni Bene­dikts­son hefur sagt slíka rík­is­stjórn vera með óþægi­lega tæpan meiri­hluta, aðeins 32 þing­menn gegn 31. Þetta er þó sami meiri­hluta og Nýsköp­un­ar­stjórnin 1944 til 1947 og Við­reisn­ar­stjórnin 1963 til 1971, sem sam­sett var af hægri og vinstri flokki, Sjálf­stæðis- og Aþýðu­flokki.

Líklegt er að tals­menn atvinnu­lífs­ins yrðu áber­andi í hægri stjórn­inni og að lögð verði áhersla á að gæta að hag fyr­ir­tækja, en stunda aðhald í rík­is­út­gjöldum og umsvifum hins opin­bera. Þá er einka­væð­ing og einka­rekstur lík­legri í slíkri rík­is­stjórn, til dæmis í heil­brigðis- og mennta­kerf­inu. Áhersla á skatta­lækk­anir, ekki síst á fyr­ir­tæki, er lík­legri í slíkri rík­is­stjórn en nokk­urri annarri.

Líklegir ráðherrar

Gera má ráð fyrir því að Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, fyrr­ver­andi ráð­herra Sjálftæð­is­flokks­ins og for­stöðu­maður hjá Samtökum atvinnu­lífs­ins, verði ráð­herra, og svo Þor­steinn Víglunds­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins. Þor­steinn vakti athygli þegar hann varð málsvari þess að almenn­ingur fengi sem minnstar launa­hækk­anir, svo forð­ast mætti verð­bólgu. Hann var­aði við því í fyrra að launa­hækk­anir mættu ekki verða meira en 3 til 4 pró­sent. „Við erum ein­fald­lega komin á enda­stöð,“ sagði hann. „Við erum að gera miklu meira en að hringja við­vör­un­ar­bjöllum. Við erum í raun og veru í krísu­á­standi. Við höfum vax­andi áhyggjur af raun­gengi íslensku krón­unnar á mæli­kvarða launa, það er hvernig launa­kostn­aður fyr­ir­tækja hér er að hækka í sam­an­burði við nágranna­lönd okkar.“

Þor­steinn sagði við úrslit kosn­ing­anna að meg­in­nið­ur­staða þeirra hefði verið að kjós­endur höfn­uðu vinstri stjórn. „Það blasir nátt­úru­lega við að þjóðin var að hafna hug­myndum um vinstri­st­jórn og það hafði tölu­verð áhrif á kosn­ing­arnar. Við fundum það á síð­ustu vik­unni að það færð­ist tölu­verður ótti yfir kjós­endur varð­andi hreina nýja vinstri­st­jórn. Ég held að það séu nú megin skila­boðin sem megi lesa út úr þessum kosn­ingum.“

Aðrir lík­legir ráð­herrar eru Hanna Katrín Frið­riks­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri hjá Icepharma, og Jón Steindór Valdi­mars­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins, ásamt Benedikt Jóhann­essyni, fjár­festi, útgef­anda og for­manni Við­reisnar. Ljóst er að Óttarr Proppé er lík­legur ráð­herra fyrir Bjarta fram­tíð. Úr Sjálf­stæð­is­flokknum má gera ráð fyrir að Bjarni Bene­dikts­son fái með sér Ólöfu Nordal og Kristján Þór Júl­í­us­son, en að auki er hugs­an­legt að Páll Magn­ús­son, Haraldur Bene­dikts­son eða jafn­vel Guð­laugur Þór Þórð­ars­son komi inn sem nýir ráð­herrar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár