Mynd: Heiða Helgadóttir

Gleði, söngur og samkennd í réttum

Heiða Helga­dóttir fór í Lauf­skála­rétt í Skaga­firði.

Þetta er stærra en jólin hjá mér,“ segir Stefán Ingi Ósk­ars­son, sem hefur farið í Lauf­skála­rétt í Skaga­firði á hverju ári síð­ustu 25 árin. Stefán er úr Reykja­vík en var í sveit hjá ömmu sinni og afa á bænum Enni í Skaga­firð­inum þegar hann var ung­lingur. Hann byrj­aði að ríða í rétt­irnar fyrir sex árum og segir að það sé topp­ur­inn.

Hestar, söngur, kjöt­súpa og góður félags­skapur er það sem kemur upp í hug­ann eftir magn­aða rétt­ar­helgi í Skaga­firð­inum. Lauf­skála­réttir eru einar vin­sæl­ustu stóð­réttir lands­ins og á hverju ári eru um 3.000 manns sem mæta í rétt­irnar.

Lauf­skála­réttir eru svo miklu meira en bara réttir, þetta er heil helgi af gleði, söng og veislum. Þarna safn­ast hesta­fólk saman og líka fólk sem sækir í upp­lifun af stemn­ing­unni og í félags­skap fólks­ins í sveit­inni.

Lagt er af stað snemma morg­uns frá Hjalta­dal og riðið inn Kol­beins­dal að stóð­inu sem er svo rekið yfir ásinn niður í rétt.

Pálmi Ragn­ars­son, bóndi í Garða­koti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár