Fyrirmyndir kvenna: „Vigdís er drottningin“

Fimm ólíkar konur á mis­mun­andi aldri segja frá því hvaða konur hafa veitt þeim inn­blástur

Á 100 ára kosn­inga­af­mæli kvenna minn­ast konur kvenna sem hafa verið þeim fyr­ir­myndir og veitt þeim inn­blástur.

Steiney
Steiney

Bóla var frábær fyrirmynd

Steiney Skúla­dóttir, dag­skrár­gerð­ar­kona, segir að margar konur hafi veitt sér inn­blástur í gegnum tíð­ina. Þar fari móðir hennar, Halldóra Geir­harðs­dóttir leik­kona, fremst í flokki. „Hún er mamma mín og ól mig upp og lagði mér lífs­regl­urnar. Ég kemst ekki hjá því að þakka henni en ég held að hún sé öðru­vísi fyr­ir­mynd fyrir mig heldur en aðra, af því að ég sé hana á annan hátt en aðrir.

Svo er það Vigdís Finn­boga­dóttir. Ég var svo ung þegar hún hætti að vera for­seti en ég man hvað ég elskaði hana djúpt í hjarta mínu og hvað mér fannst sorg­legt þegar hún hætti að vera for­seti. Ég fór á sýn­ing­una Ertu til­búin frú for­seti? um dag­inn þar sem mér fannst svo merki­legt að það var engin til­viljun hvernig hún kom fyrir. Þetta var allt út pælt hjá henni. Hún er bara mögnuð. Vigdís er drottn­ingin og ætti að vera á 50 þús­und króna seðl­inum þegar hann kemur.

Annars hafa fullt af konum verið mínar fyr­ir­myndir. Það er svo ótrú­lega mik­il­vægt að hafa fyr­ir­myndir. Alls­konar fyr­ir­myndir. Að maður sjái konur úti um allt, eins og Bólu – hún var frá­bær fyr­ir­mynd.“

Steiney er einnig hluti af Reykja­vík­ur­dætrum sem gáfu út nýtt lag í dag. „Það er mjög insperar­andi að vera með þessum stelpum og fá leyfi til þess að gera það sem maður vill. Þetta eru allt ótrú­lega kraft­miklar stelpur sem koma úr ólíkum áttum þannig að við höfum ekki mik­inn tíma til að gera tón­list allar saman en þegar við náum því þá er það svo geggjað.“

Reykja­vík­ur­dætur leggja áherslu á að konur hafi frelsi til að vera eins og þær eru, og um það snýst helsta bar­áttu­mál Stein­eyjar. „Að konur þurfi ekki alltaf að vera póli­tískt réttar.“

 

Salka Sól
Salka Sól

Mamma helsta fyrirmyndin

Stundin náði tali af Sölku Sól Eyfeld, söng­konu og dag­skrár­gerð­ar­konu, þar sem hún var stödd á Aust­ur­velli á hátíð­ar­höld­unum. Aðspurð hver hafi verið hennar helsta kven­fyr­ir­mynd í gegnum tíð­ina segir hún mömmu sína eiga þann heiður skuld­laust. „Mamma hefur alltaf verið mjög með­vituð um kven­rétt­inda­bar­átt­una og upp­lýsti mig og fræddi. Hún sagði mér hvað það væri að vera femínisti og hún náði að segja mér það án þess að nota orðið femínisti. Hún lét mig alltaf vita að ég ætti jöfn tæki­færi í líf­inu og bræður mínir,“ segir hún en móðir Sölku, Guðbjörg Ólafs­dóttir, er ein af þeim sem kom að stofnun Kvenna­list­ans á sínum tíma.

Salka nefnir einnig Vigdísi Finn­boga­dóttur en hún hafði verið for­seti í átta ár þegar Salka fædd­ist. „Það er ótrú­legt hvað hún hefur gert fyrir kven­þjóð­ina, bæði með­vitað og ómeð­vitað,“ segir hún. „Hún var for­seti þegar ég fædd­ist, þannig maður ólst upp við að það væri mjög eðli­legt að kona væri for­seti. Ég var ekk­ert að kippa mér upp við það að hún væri kona, ég hafði ekki vit á því. Þegar ég komst síðan til vits og ára átt­aði ég mig á því hvað það er merki­legt. Ég er afskap­lega þakk­lát fyrir að hafa alist upp að hluta til með kven­for­seta.“ Þá seg­ist Salka sömu­leiðis eiga sér margar fyr­ir­myndir í tón­list­inni og nefnir þar til að mynda Emilíönu Torrini og Björk. „Ekkert endi­lega af því þær eru konur, heldur finnst mér þær bara ótrú­lega flottir tón­list­ar­menn.“

Hvað finnst þér mik­il­væg­ast að hafa í huga á þessum degi? „Mér finnst mjög mik­il­vægt að þekkja sög­una svo hún end­ur­taki sig ekki,“ svarar Salka. Hún segir umræð­una um femín­isma oft á villi­götum, sér­stak­lega í netheimum. „Það er svo leið­in­legt að þurfa að eyða púðri í það að rétt­læta til­vist femín­isma, þegar mér finnst til­vist hans svo sjálf­sögð. Ég vil heldur verja tím­anum í að berj­ast fyrir því sem þarf að berj­ast fyrir, eins og jöfnum launum og tæki­færum.“

 

Þórdís Elva
Þórdís Elva

Fæddist daginn sem Vigdís tók við embætti

„Ég fædd­ist dag­inn sem Vigdís Finn­boga­dóttir tók við emb­ætti, þannig ég er nákvæm­lega jafn gömul og hennar for­seta­tíð – upp á dag,“ segir Þórdís Elva Þor­valds­dóttir, leik­kona og rit­höf­undur, um kven­fyr­ir­mynd­irnar sínar. „Það er því fyrsta nafnið sem kemur upp í hug­ann. Ég ólst upp mjög með­vituð um að ég væri jafn­gömul og leið­toga­tíð fyrsta kven­for­set­ans. Ég kann Vigdísi miklar þakkir fyrir það. Hún hefur líka

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár