Lára svarar fyrir sig: Ekkert leyndarmál við Rauðfossakvísl

Lára Ómars­dóttir kippir sérr ekki við harða gagn­rýni vegna sýn­ingar á nátt­úru­undri við Rauð­fossa­kvísl í sjón­varpi. Skipu­lögð göngu­leið á svæðið. Hún fagnar umræð­unni en heldur sínu striki.

Lára svarar fyrir sig: Ekkert leyndarmál við Rauðfossakvísl

„Þessi staður á fullt erindi í þátt­inn. Þetta er ekki síst gert fyrir fólkið sem ekki á þess kost að ferð­ast um landið sitt en fær að sjá þessu fal­legu staði íslenskrar nátt­úru í sjón­varpi,“ segir Lára Ómars­dóttir dag­skrár­gerð­ar­maður vegna þeirrar gagn­rýni sem fram er komin vegna þess að hún sýndi frá upp­tökum Rauð­fossa­kvíslar, einum af feg­urstu stöðum íslenskrar nátt­úru í þætti sínum, Ferðastiklum, í gær­kvöld.

Páll Ásgeir Ásgeirs­son leið­sögu­maður taldi rangt að vekja athygli á svæð­inu sem þoli ekki mik­inn ágang ferða­fólks. Lýsti hann birt­ingu í Ferðastiklum sem „óhappa­verki“. Mikil umræða hefur orðið vegna þess sjón­ar­miðs og sýn­ist sitt hverjum. Lára seg­ist virða þær skoð­anir sem fram hafi komið um að ekki eigi að vekja athygli á við­kvæmum stöðum í nátt­úr­unni.

„Umræðan er af hinu góða en ég hvika ekki frá því að þetta átti erindi í þátt­inn minn. Ég treysti fólki vel til þess að fara var­lega þar sem um er að ræða við­kvæm svæði og ganga vel um Ísland,“ segir hún.

Mynd­skeið Láru frá Rauð­fossa­kvísl vakti mikla athygli. Und­ur­fag­urt er þar yfir að líta. Í rauðum far­vegi foss­ins blasa við slíkar kynja­myndir að menn hafda verið agn­dofa. Lára segir að umrædd leið frá Dóma­dals­leið að upp­tökum Rauð­fossa­kvíslar sé opin­ber og vanda­laust fyrir flesta að finna stað­inn.

„Meðfram henni er skipu­lögð göngu­leið á vegum sveit­ar­fé­lagssins Ranga­ár­þings ytra. Ég fékk upp­lýs­ingar um þennan stað frá fólki sem farið hafði í skipu­lagðar ferðir þangað,“ segir Lára sem hyggst ótrauð halda áfram að sýna þjóð­inni gim­steina íslenskrar nátt­úru.

 
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Rauðufossakvísl

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár