Sigurður Ingi vill lítið tjá sig um hugsanlegan hvalrekaskatt

Sigurður Ingi Jóhanns­son segir að rík­is­stjórn­ar­flokk­unum hafi tek­ist brúa bilið á milli rík­is­stjórn­ar­flokk­anna til þess að tryggja áfram­hald­andi sam­starf. Sú vinna og þau sam­töl milli flokk­anna muni þó halda áfram.

Sigurður Ingi Jóhannsson segir að ríkisstjórnarflokkunum hafi tekist að koma sér saman um forgangsröðun á brýnum verkefnum sem þurfi að leysa í bráð.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, sem brátt mun taka við sem fjár­mála­ráð­herra, segir að í við­tali við blaða­mann Heim­ild­ar­innar að rík­is­stjórn­ar­flokk­unum hafi unda­farna daga tek­ist að brúa ýmis bil sem eru á milli flokk­anna til þess að tryggja áfram­hald­andi stjórn­ar­sam­starf.

Þrátt fyrir ólíkar stefnur til mála­flokka á borð við orku­mál, útlend­inga­mál og efna­hags­mál hefur stjórn­ar­flokk­unum tek­ist að for­gangs­raða verk­efnum sem þeir telji brýnt að að leysa á þessu þingi. Nefnir Sigurður þar til dæmis útlend­inga og orku­mál.

Þá segir Sigurður Ingi núver­andi rík­is­stjórn hafa mikla reynslu af því að miðla málum allt frá því að flokk­arnir hófu sam­starf sitt árið 2017.

Hann við­ur­kennir þó að vinna og sam­töl milli stjórn­ar­flokka muni halda áfram það sem eftir er af kjör­tíma­bil­inu og enn eigi eftir að koma sér saman um ýmis mál.        

Vill lítið tjá sig um hugsanlegan hvalrekaskatt

Ljóst er að rík­is­stjórn­ar­flokk­unum greinir á um hvaða aðgerðir …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár