IKEA hefur aldrei gengið betur - Vöxturinn mikill á „erfiðum“ mörkuðum

Sænski húsgagna­risinn IKEA var með 35,9 milljarða evra, eða tæplega 5.000 milljarða króna, í tekjur á síðasta fjárhagsári sínu sem lauk 31. ágúst. Þetta kemur fram í uppgjör ársins sem opinberað var í dag, en tekjur jukust um 11,2 prósent milli ára.

Munar mest um magnaðar móttökur sem verslanir IKEA hafa fengið í Kína og víðar í Asíu, en vöxturinn milli ára er nær allur á Kína­markaði.

IKEA hefur sótt verulega í sig veðrið á mörkuðum sem nú eru í nokkurri niður­sveiflu, meðal annars í Rússlandi og Brasilíu, en svo virðist sem fólk sæki í vörur fyrir­tækisins, fremur en aðrar, þegar þrengja tekur að fjár­hagnum enda er lágt vöruverð og sjálfs­afgreiðsla við samsetningu aðals­merki þessa stærsta smásölu­aðila húsgagna á heimsvísu.

Heildar­velta IKEA á ári, samsvarar um 2,5 sinnum árlegri lands­framleiðslu Íslands, en hún var tæplega tvö þúsund milljarðar í fyrra.


IKEA full-year sales - $35.79 billion - rise 11.2% on China boost http://t.co/HJFJshuEQT


— Gary Lewis (@slidemongoose) September 10, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár