Eyrún ráðin framkvæmdastjóri Kjarnans

Nýr framkvæmda­stjóri hefur hafið störf hjá Kjarnanum.

Eyrún Magnúsdóttir hefur verið ráðin framkvæmda­stjóri Kjarnans. Hún hefur þegar hafið störf.

Eyrún hefur síðastliðin tæp sjö ár haft umsjón með og ritstýrt Sunnudags­blaði Morgun­blaðsins en starfaði þar áður sem ráðgjafi árum saman þar sem hún kom að ýmis konar verkefna­stjórnun, markaðs- og útgáfu­málum og stefnu­mótunar­vinnu. Hún starfaði einnig á RÚV á árunum 2004 til 2006 og var meðal annars einn þátta­stjórnenda Kastljóss á því tímabili. Eyrún er með BA gráðu í hagfræði með sagnfræði sem aukagrein. Þá hefur hún lokið meistara­námi í stjórnun og stefnu­mótun frá viðskipta­fræði­deild Háskóla Íslands.

Eyrún tekur við starfi framkvæmda­stjóra af Þórði Snæ Júlíussyni sem gegnt hefur því samhliða ritstjóra­starfi frá byrjun árs 2018. Hann mun nú einbeita sér alfarið af ritstjórn Kjarnans.

„Kjarninn hefur náð að skapa sér sess sem vandaður miðill þar sem áherslan er á gæði og dýpt umfjöllunar. Blaðamenn og aðrir sem að Kjarnanum standa hafa skýra sýn á hlutverk sitt við að upplýsa og útskýra með almannahag að leiðar­ljósi. Ég er ákaflega spennt að takast á við áskoranir fram­tíðarinnar með þessum metnaðar­fulla hópi og taka þátt í að þróa Kjarnann áfram," segir Eyrún. 

Þórður Snær segir það mikinn feng að fá Eyrúnu til starfa. „Rekstur Kjarnans hefur gengið vel undan­farin ár og er í góðu jafnvægi. Stefna okkar sem að honum standa er að halda áfram að vaxa, styrkja stöðu Kjarnans í íslensku fjölmiðla­umhverfi og auka við þá umfangs­miklu frétta­þjónustu sem við veitum lesendum okkar nú þegar. Eyrún hefur mikla reynslu af fjölmiðla­starfsemi auk þess sem hún býr yfir menntun, þekkingu og hæfi­leikum til að leiða þann vöxt.“

Kjarn­inn rekur frétta­vef, gefur út dag­legan morg­un­póst, stendur að opna umræðu­vettvangnum Leslistanum og heldur úti hlað­varps­þjón­ustu. Þá gefur Kjarn­inn út Vís­bend­ingu, viku­rit um við­skipti, efna­hags­mál og nýsköp­un, og ensk frétta­bréf.

Kjarn­inn er einnig í sam­starfi við önnur fjöl­miðla­fyr­ir­tæki um fram­leiðslu á frétta­tengdu efni. Helstu samstarfs­aðilar eru sjónvarps­stöðin Hringbraut og Birtingur, vegna útgáfu á vikulega fríblaðinu Mannlífi.

Ritstjórnar­stefna Kjarnans er að leggja áherslu á gæði og dýpt í umfjöllunum sínum. Að upplýsa almenning í stað þess að einblína á að skapa vefumferð. Þar er lögð áhersla á umfjöllun um alþjóðamál, innlenda þjóðmála­umræðu, viðskipti, efnahagsmál, stjórnmál og loftlags- og umhverfismál. Lykillinn að því að gera þetta kleift er Kjarna­samfélagið, þar sem einstaklingar styrkja Kjarnann með mánaðar­legu framlagi. Hægt er að gerast styrktar­aðili hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár