Grikkir reyna allt til að fá peninga frá Seðlabanka Evrópu

Grísk stjórn­völd reyna nú allt til að verða sér út um fjármagn frá Seðla­banka Evrópu, en bankinn hefur að undan­förnu þrengt skilyrði fyrir fjár­mögnun handa grískum fjármála­stofnunum og gríska ríkinu.

Seðla­banki Evrópu hefur nú krafist meiri trygginga en áður, og eiga grískar fjármálastofanir í erfið­leikum með að mæta þeim kröfum, að því er fram kemur á vef New York Times.

Seðla­bankinn í Grikk­landi hefur að undan­förnu hækkað kröfur sínar um 50 prósent, þegar kemur að skammtíma lánum til grískra banka. Ástæðan er sú, að ekkert bendir til þess að grísk stjórn­völd muni geta fjár­magnað skuldir sínar sem eru á gjalddaga í lok mánaðarins, og í sumar.

Afborganir lánanna, sem Grikkir eiga að standa skil á sumar­mánuðum, nema 2,5 milljörðum evra, sem jafn­gildir 364 milljörðum króna.

Samninga­viðræður um endurfjámögnun skulda Grikkja standa nú yfir, og er ekki ljóst hvenær niður­staða liggur fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár