Af nokkrum verkum Salmans Rushdie

Hinn öflugi þýðandi Árni Óskarsson hefur þýtt nokkrar bækur eftir Salman Rushdie yfir á íslensku. Hann þekkir lífsverk höfundarins afar vel og skrifar hér um bækur hans.

Rushdie er þekktastur fyrir Söngva Satans en hann hefur sannarlega skrifað fleiri bækur, eins og hér má lesa um.
Rushdie er þekkt­astur fyrir Söngva Satans en hann hefur sann­ar­lega skrifað fleiri bækur, eins og hér má lesa um. Mynd: Anton Brink

Á einum stað í nýju bókinni, Hnífur, segir Salman Rushdie frá fyrstu „endur­hæfingu“ sinni af fjórum á lífs­leiðinni, þegar hann varð að fara gegnum spegilinn til að „endur­uppgötva og endurgera – betrumbæta – sjálfan mig í öðrum veruleika og leika nýtt hlutverk í heiminum“. Hann lýsir því hvernig hann hafi þá fyrst öðlast sjálfs­þekkingu og dómgreind þegar hann komst áleiðis með aðra skáldsögu sína, Miðnætur­börn, „bók þar sem ég reyndi að endur­heimta ekki bara Indland heldur sjálfan mig“.

Indland öðlast nýja rödd í skáldskap

Miðnæturbörn – Forlagið bókabúð

Sagt hefur verið að með Miðnætur­börnum (Midnight Children, 1981) hafi Indland öðlast nýja rödd í skáldskap. Í stað þeirrar settlegu myndar af landinu sem hafði áður birst í skáld­sögum kom nú fram höfundur sem tók sér fyrir hendur að lýsa því í óendanlegum marg­breytileika þess með fjölskrúðugu tungutaki í kraft­miklum frásögnum sem mynduðu eina iðandi og marg­slungna heild. Sagan gerist í Bombay og þar koma við sögu helstu atburðir í sögu landsins eftir að það fékk sjálf­stæði. Sögu­maðurinn er eitt af 1001 barni sem fæddist fyrsta klukku­tímann sem landið var sjálfstætt 15. ágúst árið 1947. Tvö af þessum börnum fæðast á sama fæðingar­heimilinu á slaginu á miðnætti og er annað komið af fátæklingum, hitt af auðmönnum. En börnunum er víxlað. Það barnið sem er af múslimskum aðalsættum lendir í höndum götu­söngvara sem skírir hann Shiva, en auðmanna­fjölskyldan fær fátæklinginn með gúrku­nefið sem er hálfur Englendingur og hálfur hindúi og skírir hann Saleem. Þeir Shiva og Saleem (sögu­maðurinn) búa því við ólíkt atlæti og verða síðar svarnir fjendur.

Besta breska skáldsaga aldarfjórðungsins

Rushdie beitti hér aðferðum sem Gabriel Garcia Marquez hafði innleitt í skáldsögu sinni Hundrað ára einsemd og kenndar hafa verið við töfra­raunsæi. Saleem fær dag einn höfuðhögg og uppgötvar að hann býr yfir fjar­skyggni. Frá níu ára aldri getur hann blandað sér í líf annarra að vild, séð í gegnum veggi, uppgötvað öll leyndarmál. Hann kemst að því að öll miðnætur­börnin búa yfir yfir­náttúru­legum hæfi­leikum og hann dreymir um að nýta alla þessa hæfileika í þágu landsins. En vegna þess að þau ógna valdhöfum með hæfi­leikum sínum snúast þeir gegn þeim. Þannig felur sagan í sér snarpa gagnrýni á þróun indversks samfélags. Hún fékk afar góðar viðtökur og aflaði höfundi sínum heims­frægðar. Rushdie hlaut hin eftir­sóttu Booker-verðlaun fyrir hana og síðar var bætt um betur með öðrum sérstökum Booker-verð­launum fyrir bestu bresku skáldsögu aldar­fjórðungsins.

„Rushdie beitti hér aðferðum sem Gabriel Garcia Marquez hafði inn­leitt í skáld­sögu sinni Hundrað ára ein­semd og kenndar hafa verið við töfraraun­sæi“

Blygðunarefni í einkalífi

Shame: A Novel: Rushdie, Salman: 9780812976700: Amazon.com: Books

Næsta skáldsaga Rushdies, Blygðun (Shame, 1983, enn óþýdd á íslensku), var háðsádeila um íslamska einræðis­ríkið Pakistan sem höfundur lýsti sem „eins konar nútíma­ævintýri“. Þetta er litrík saga af fjöl­skyldum þeirra Raza Hyder hers­höfðingja og verðandi einræðis­herra og glaum­gosans Iskanders Harappa, auðugs land­eiganda. Sá fyrr­nefndi er augljós­lega byggður á Zia ul-Haq, en hinn síðarnefndi á Ali Bhutto sem var forsætis­ráðherra áður en ul-Haq steypti honum af stóli. Sagan lýsir lygilegum pólitískum atburðum sem þó eru byggðir á sögulegum stað­reyndum. Grunnþema bókarinnar er skömm og heiður sem uppspretta ofbeldis. Sæmdin er ein af æðstu hugsjónum í samfélögum þar sem aldagömul siða­lögmál hafa meira vægi í lífi fólks en á Vestur­löndum. Blygðunar­efni í einkalífi leiða hér til valdaráns og blóðsút­hellinga.

Söngvar Satans

Í Hnífnum segir Rushdie frá því að um tíma hafi honum fundist Söngvar Satans (The Satanic Verses, 1988) ekki vera ein bók heldur þrjár. „Ein bók um þorps­búana sem gengu í sjóinn, önnur um efnið tengt fæðingu trúar­bragða og þriðja og lengri bók um suður­asíska innflytjendur í London samtímans.“ Síðar hafi hann áttað sig á því að allar sögurnar væru kaflar í lífi erki­engilsins Gabríel og séð að þetta var ein bók. „Og aðal­söguhetjan átti að heita Gibreel Farishta. Gibreel, Gabríel, og Farishta, engill.“ Í upphafi sögunnar hertaka hryðju­verkamenn farþega­þotu á leið frá Indlandi til Englands og hún springur í tætlur í loftinu yfir Ermar­sundi. Það krafta­verk gerist að tveir farþeganna svífa hægt niður og komast upp á Englands­strönd. Annar þeirra er fræg indversk kvikmynda­stjarna, Gibreel Farishta, en hinn, Saladin Chamcha, starfar við að lesa inn á útvarps- og sjónvarps­efni í Englandi, þúsund radda maður sem líka er Indverji en ákafur aðdáandi enskrar menningar. Fljótlega eftir land­gönguna kemur í ljós að þeir hafa ummyndast í fallinu. Gibreel virðist hafa fengið geisla­baug, en á Saladin vaxa horn og klaufir. Þetta veldur þeim að vonum miklum erfið­leikum þegar til London er komið. Sjálfs­myndin skaddast og þeir lenda í kostulegum útistöðum við umhverfi sitt. Dregin er upp skopleg mynd af hlut­skipti innflytjenda sem standa mitt á milli tveggja menningar­heima og enskur veruleiki er fram­andgerður á marg­víslegan máta. Gibreel hefur glatað trúnni og það er tómarúm í tilveru hans, en á hann sækja martraðar­kenndir guðlasts­draumar um nafna hans Gabríel erkiengil og spámanninn Magún. Goðsögu­legir og fjarrænir draumar hans fleyga frásögnina svo að úr verður skáldverk í mörgum lögum þar sem hugmynda­auðgi, fyndni og sagna­gleði höfundarins nýtur sín vel.

Lítil bók eftir líflátsdóm

Eftir að hafa fengið á sig líflátsdóm bókstafs­trúar­klerka í Íran vegna Söngva Satans skrifaði Rushdie litla bók, Harún og sagna­hafið (Haroun and the Sea of Stories, 1990), skemmtilegt ævintýri um baráttuna gegn þeim illu öflum sem ætla að menga sjálfa uppsprettu frásagn­anna, sagna­hafið. Eins og efnið gefur tilefni til geymir sagan ófáar vanga­veltur um skáld­skapinn og stöðu hans í heiminum en er jafnframt enn ein rósin í hnappa­gati sagna­meistarans Rushdie.

„Eftir að hafa fengið á sig líf­láts­dóm bók­stafs­trú­arklerka í Íran vegna Söngva Satans skrif­aði Rushdie litla bók, Harún og sagna­hafið (Haroun and the Sea of Stories, 1990), skemmti­legt ævin­týri um bar­átt­una gegn þeim illu öflum sem ætla að menga sjálfa upp­sprettu frá­sagn­anna, sagna­hafið.”

Í smiðju Günthers Grass

The Moor's Last Sigh: A novel: Rushdie, Salman: 9780679420491: Books -  Amazon.ca

Næsta stóra skáld­sagan var Hinsta andvarp márans (The Moor‘s Last Sigh, 1995), um nútíma­fjölskyldu sem á rætur að rekja til portúgalskra kaupmanna sem settust að í borginni Cochin á sunnan­verðu Indlandi í fyrndinni. Hér gengur Rushdie í smiðju Günthers Grass sem fann upp á því í skáldsögu sinni Blikk­trommunni að láta sögumann sinn hætta að vaxa. Sögu­maðurinn í þessari bók Rushdie, Moraes Zogoiby, kallaður Mári, er hins vegar með þeim ósköpum gerður að eldast helmingi hraðar en aðrir menn, enda er engu líkara en sagan þeytist áfram á tvöföldum hraða. Eftir að hafa flúið land vegna fólsku­verka situr Moraes í stofu­fangelsi í höll geðsjúklings á Spáni og ritar sögu ættar sinnar á 20. öld sem fléttast saman við sögu af miklum glæpum og stór­felldri spillingu í indverskum stjórn­málum. Í bakgrunni kallast á við nútíma­viðburði sagan af því þegar márar og gyðingar voru forðum flæmdir frá Spáni.

Flókinn póstmódernískur heimur

Jörðin undir fótum hennar – Forlagið bókabúð

Hin mikla skáldsaga Jörðin undir fótum hennar (The Ground Beneath Her Feet, 1999) fjallar um rokk­tónlistar­menn sem verða að heims­stjörnum, en hún byggir jafnframt á sögninni af hinum forna söngvara Orfeifi og Evridís ástkonu hans sem hann reyndi að sækja aftur úr ríki dauðra. Eins og í fyrri verkum Rushdie rekur hver dramatíski viðburðurinn annan og nútíma­atburðir kallast á við fornar sagnir. Höfundur bregður upp mynd af flóknum póst­módernískum heimi þar sem allt virðist renna saman, ekkert er eins og það sýnist í fyrstu og enginn sann­leikur er endanlegur. Mynd­hverfing þessa ástands er jörðin sem skelfur og gleypir aðra aðal­söguhetjuna Vínu að lokum. Hún er syrgð um allan heim en tónlistin lifir áfram.

Sjö óþýddar skáldsögur

Síðan hefur Rushdie sent frá sér sjö skáldsögur en engin þeirra hefur enn verið þýdd á íslensku. Nefna má Trúðinn Shalimar (Shalimar the Clown, 2005) sem fjallar um Kasmír og geymir vanga­veltur um hvað það er sem leiðir menn til hryðju­verka. Quichotte (2019) færir Don Kíkóta Cervantesar inn í bandarískt nútíma­samfélag. Sigur­borgin (Victory City, 2023) er mikil söguleg skáldsaga sem gerist á Indlandi fyrr á öldum. Hún skartar kven­persónu í aðal­hlutverki sem býr yfir yfir­náttúru­legum hæfi­leikum, ríkir yfir stórveldi og nær 247 ára aldri.

Þá eru ótaldar tvær merkilegar sjálfsævi­sögulegar bækur, Joseph Anton (2012), sem fjallar um árin þegar Rushdie fór huldu höfði í Englandi í kjölfar fatwa-dómsins, og Hnífur (Knife, 2024), sem hann skrifaði um hnífstungu­árásina árið 2022 og nú er komin út í íslenskri þýðingu.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár