Konráð ráðinn tímabundið sem efnahagsráðgjafi Samtaka atvinnulífsins

Konráð S. Guðjónsson, aðal­hagfræðingur Stefnis, hefur verið ráðinn tíma­bundið til SA sem efnahags­ráðgjafi. Hann mun jafnframt setjast í samninga­nefnd samtak­anna fyrir komandi kjara­samninga­viðræður.

Samtök atvinnu­lífsins (SA) hafa ráðið Konráð S. Guðjónsson, fyrr­verandi aðstoðar­framkvæmda­stjóra Viðskipta­ráðs og núverandi aðal­hagfræðing sjóð­stýringar­fyrir­tækisins Stefnis, tíma­bundið í stöðu efnahags­ráðgjafa í aðdrag­anda komandi kjarna­samnings­gerðar. Hann mun jafnframt taka sæti í samninga­nefnd SA og hefja störf um komandi mánaðamót. Þegar hlutverki hans hjá SA er lokið mun Konráð snúa aftur til Stefnis, sem er í eigu Arion banka.

Frá þessu er greint í tilkynningu á heimasíðu SA í dag. Þar er haft eftir Halldóri Benjamín Þorbergs­syni, framkvæmda­stjóri SA, að það sé mikill styrkur að fá Konráð tíma­bundið til liðs við SA. „Við væntum mikils af honum og þekkjum vel til hans starfa í gegnum tíðina.“

Konráð var sérfræðingur í greiningar­deild Arion banka um þriggja ára skeið áður en hann var ráðinn hagfræðingur Viðskipta­ráðs seint á árinu 2017. Hann tók við því starfi af Kristrúnu Frosta­dóttur, sem hafði ráðið sig sem aðal­hagfræðing Kviku banka. Kristrún hóf stjórnmála­þátttöku í fyrra og er nú í framboði til formanns Samfylkingarinnar.

Sumarið 2020 var Konráð ráðinn aðstoðar­framkvæmda­stjóri Viðskipta­ráðs og sinnti því starfi þar til seint á síðasta ári þegar hann réð sig til Stefnis. Hann er með meistara­gráðu í hagfræði frá Warwick háskóla í Bretlandi og B.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár