Costco velti 27 milljörðum og greiddi milljarða til eiganda

Costco á Íslandi greiddi 4,5 milljarða króna til móður­félagsins í Bretlandi á síðasta ári. Stærstur hluti greiðslunnar var lækkun á hlutafé en 1,8 milljarða arður fylgdi. Starfs­fólki Costco á Íslandi fjölgaði í fyrra og reksturinn virðist ganga vel.

Hagnaður
Hagnaður Kaup­fé­lagið Costco hagn­að­ist um rúman hálfan millj­arð í fyrra. Mynd: Bára Huld Beck

Costco í Kauptúni velti 26,7 milljörðum króna á síðasta rekstrarári, sem lauk 31. ágúst 2025. Veltan jókst um tæpa tvo milljarða króna frá fyrra ári, eða 7,9 prósent. Þetta kemur fram í ársreikningi Costco Wholesale Iceland ehf., sem er félagið á bak við starfsemina í Garðabæ.

Rekstrar­hagnaður félagsins jókst verulega milli ára og nam 94 milljónum króna, saman­borið við 36 milljónir króna árið áður. Rekstrar­hagnaðurinn er þó áfram mjög lítill sem hlutfall af veltu, eða 0,35 prósent.

Hagnaður ársins eftir skatta nam 557 milljónum króna og dróst saman um 50 milljónir frá árinu áður. Skýrist það ekki síst af lægri fjármuna­tekjum, sem námu 422 milljónum króna á árinu en voru 514 milljónir króna árið áður.

Milljarða arðgreiðsla og útgreiðsla

Þrátt fyrir að hagnaður ársins hafi numið rúmum hálfum milljarði króna fóru mun hærri fjárhæðir út úr félaginu á árinu. Samkvæmt sjóð­streymis­yfirliti greiddi félagið 1,8 milljarða króna …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár