Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

Fjöl­miðillinn Business Insider tekur reglulega saman lista yfir tíu mikil­vægustu hlutina sem eru að gerast í heiminum í dag, að þeirra mati. Þar er ekkert að finna um ramma­áætlun, íslenskar kjara­deilur, húsnæðis­frumvörp Eyglóar Harðar­dóttur eða ummæli Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar forsætis­ráðherra um helgina. Hér er því listi dagsins í dag.


  1. Íraski herinn hóf gagnsókn gegn Íslamska ríkinu við borgina Ramadi á laugardag, viku eftir að að samtökin náðu borginni á sitt vald.

  2. Að minnsta kosti 13 manns létust og þúsundir heimila urðu fyrir skemmdum þegar hvirfil­bylur gekk yfir norður­hluta Mexíkó.

  3. Neyðar­ástandi hefur verið lýst yfir í Texas eftir að þrír létust vegna skyndilegra flóða.

  4. Lýðflokkurinn, sem leiðir ríkis­stjórn Spánar, hlaut á sunnudag verstu útreið sína í meira en tvo áratugi þegar sveita­stjórnar­kosningar fóru fram í landinu. Þing­kosningar fara fram á Spáni í nóvember.

  5. David Cameron, forsætis­ráðherra Bretlands, hitti Jean Claude Juncker, forseta framkvæmda­stjórnar Evrópu­sambandsins, á mánudags­kvöld til að ræða endur­bætur á samstarfi innan sambandsins.

  6. Ein stærsta herþotu­æfing Evrópu hófst í dag nálægt landa­mærum Rússland. Auk aðildar­ríkja NATO taka Svíþjóð, Finnland og Sviss þátt í æfingunni sem er ætlað að kanna samvinnu milli þátttöku­landanna.

  7. Japan mun í fyrsta sinn taka þátt í heræfingu með Banda­ríkjunum og Ástralíu í sumar. Talið er að það sé vegna þess að landið hafi vaxandi áhyggjur af athöfnum Kínverja í suður-Kínahafi.

  8. Dætur blús­goðsagnarinnar BB King telja að viðskipta­stjóri og persónu­legur aðstoðar­maður hans hafi byrlað honum eitur sem hafi flýtt fyrir dauða hans fyrir skemmstu.

  9. Grikkland er enn í viðræðum við alþjóð­lega lánveitendur sína um að fá um 7,2 milljarða evra, 1.065 milljarða króna, neyðarlán afhent. Skoðana­kannanir sýna að samninga­tækni Alexis Tsipras, forsætis­ráðherra, er að tapa stuðning almennings.

  10. Flug­félagið Malasyia Airlines er að fara í algjöra yfirhalningu sem í felst meðal annars að segja upp um einum þriðja hluta starfs­manna. Þetta gerist í kjölfar tveggja flugslysa hjá félaginu á síðasta árinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár