Gagnrýnir bankana fyrir að „vera kröfuhafi á ríkið“

Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, seg­ist velta fyrir sér hvort það ætli allir að vera með kröfu um „að sækja enda­lausa fjár­muni til rík­is­ins“ og spyr hvort bankar séu ekki til þess að styðja við atvinnu­líf og heim­ili.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, telur að allir eigi að leggja sitt af mörkum í krepp­unni sem framundan er. Þetta sagði hann í Kast­ljósi í kvöld eftir að hann var spurður um stöðu sveit­ar­fé­lag­anna. 

„Það verða allir að leggja sitt af mörkum. Og ég hlust­aði nú bara á niðri á þingi fyrir nokkrum dögum og ég fór að velta fyrir mér hvort það ætl­uðu allir að vera með þessa kröfu á að það væri hægt að sækja enda­lausa fjár­muni til rík­is­ins, meðan við verðum einmitt öll að leggj­ast á eitt,“ sagði Sigurður Ingi.

Þá vék hann sér­stak­lega að bönk­unum og lán­veit­ingum þeirra til fyr­ir­tækja.

„Hér voru hag­fræð­ingar frá bönk­unum og ég fór að velta fyrir mér: Til hvers eru bankar? Eru þeir ekki til þess að styðja við atvinnu­lífið og heim­ilin í land­inu? En ekki vera kröfu­hafi á ríkið. Því hver er ríkið? Það erum við sjálf.“

Aðspurður hvort hann vildi gera þá kröfu að bank­arnir stigu í auknum mæli inn í atburða­rás­ina sagði Sigurður:

„Klárlega. Það var fyrsta aðgerð okkar, og Seðla­bank­ans, að tryggja þeim nægi­legt lausafé til þess að þeir gætu gert það. Ég gat ekki heyrt annað hjá yfir­stjórn bank­anna á þeim tíma en að þeir væru til­búnir til þess. Við heyrum hins vegar mikið á fólki að það sé ekki að ger­ast, svo við vonum auð­vitað að það sé ekki tónn­inn, að það eigi að setja allar kröfur á rík­is­valdið, því við verðum öll að takast á við þetta. Og þeir sem eru betur settir en aðrir, þeir verða að þola þær byrðar líka.“

Bjarni Bene­dikts­son var spurður um fram­kvæmd brú­ar­lána til fyr­ir­tækja á Alþingi í dag. „Nú er í loka­frá­gangi sam­komu­lag milli Seðla­bank­ans og fjár­mála­fyr­ir­tækj­anna um þann enda máls­ins,“ sagði hann. „Ég get svo sem sagt fyrir mitt leyti að það er óheppi­legt að þetta hafi tekið þennan tíma en þó hefur kannski ekki orðið mikið tjón af því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár