Ísland mun taka á móti allt að 75 flóttamönnum á næsta ári

Rík­is­stjórnin hefur tekið ákvörðun um mót­töku allt að 75 flótta­manna á næsta ári, að stærstun hluta Sýr­lend­ingum sem staddir eru í Líbanon en einnig hinsegin flótta­mönnum og fjöl­skyldum þeirra sem nú eru í Kenýa.

Rík­is­stjórnin tók í dag ákvörðun um mót­töku allt að 75 flótta­manna á næsta ári, að stærstun hluta Sýr­lend­ingum sem staddir eru í Líbanon en einnig hinsegin flótta­mönnum og fjöl­skyldum þeirra sem nú eru í Kenýa. Ákvörð­unin bygg­ist á til­lögum flótta­manna­nefndar í sam­starfi við Flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Þetta kemur fram í frétt vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins.

Í henni kemur fram að þetta sé í fjórða sinn sem stjórn­völd taka á móti sýr­lensku flótta­fólki en fyrsti hóp­ur­inn kom hingað árið 2015. Þetta sé í þriðja sinn sem tekið er á móti hinsegin flótta­fólki.

Næstu skref vegna áform­aðrar mót­töku flótta­fólks hér á landi verða að upp­lýsa Flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna um ákvörðun rík­is­stjórn­ar­innar, sam­kvæmt ráðu­neyt­inu. „Stofn­unin leggur í fram­haldi af því fram upp­lýs­ingar um þá ein­stak­linga sem hún telur koma til greina að bjóða til Íslands og verður unnið úr þeim upp­lýs­ingum hér á landi, meðal ann­ars með aðkomu Útlend­inga­stofn­unar. Þegar fyrir liggur hverjum verður tekið á móti og þar með upp­lýs­ingar um sam­setn­ingu hóps­ins, aldur, fjöl­skyldu­sam­setn­ingu og fleira tengt aðstæðum þeirra og þörfum, semur vel­ferð­ar­ráðu­neytið við til­tekið sveit­ar­fé­lag eða sveit­ar­fé­lög um mót­töku fólks­ins,“ segir í frétt­inni. 

Enn fremur kemur fram að Sýr­lend­ingar séu fjöl­menn­astir í hópi fólks á flótta í heim­inum sem er í þörf fyrir alþjóð­lega vernd. Sýr­lenskir flótta­menn í Líbanon telji yfir milljón manns, búi þar við þröngan kost og staða þeirra hafi farið síversn­andi. Um 55 pró­sent sýr­lenskra barna á flótta sem stödd eru í Líbanon hafi ekki aðgang að form­legri menntun.

Jafn­framt segir að staða hinsegin flótta­fólks í Afríku sé við­kvæm vegna útbreiddra for­dóma. Algengt sé að hinsegin flótta­fólk og fjöl­skyldur þess verði fórn­ar­lömb ofbeldis í flótta­manna­búðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár