36 rússnesk herskip hjá norskri lögsögu án vitundar Norðmanna

Yfir stendur stærsta her­æf­ing rúss­neska sjó­hers­ins í ára­tug við Nor­egs­strendur, en rúss­neski her­inn gerði Norð­mönnum ekki við­vart.

Rúss­neski her­inn hefur lokað fyrir umferð í Barents­haf­inu vegna óvæntrar hern­að­ar­æf­ingar, án þess að hafa látið norsk yfir­völd vita. Þetta kemur fram í frétt Independent Barents Observer.

Í frétt NRK um málið segir að æfing Rússa sé sú stærsta í tíu ár, en í henni taka 36 her­skip og um 20 flug­vélar. Auk þess verða meira ein 150 eld­flaugar með­fram strönd Kóla­skaga. Æfingin hefur verið skil­greind sem svokölluð neyðar­æf­ing, en sam­kvæmt varn­ar­mála­ráðu­neyti Rúss­lands er mark­mið hennar að und­ir­búa sig gegn „viða­mik­illi óvina­árás“.

Tals­maður höf­uð­stöðva norska hers­ins, Brynjar Stordal segir að Norð­mönnum hafi ekki verið greint frá æfing­unni. Hún sé fram­kvæmd innan heim­ilda rúss­neska hers­ins þar sem hún eigi sér stað innan lög­sögu þeirra, en norski her­inn fylgist að sjálf­sögðu grannt með þeim.

„Það er okkar starf að hafa góða yfir­sýn yfir allar athafnir sem fara fram nálægt land­inu okkar. Við fylgj­umst með hvers kyns hreyf­ingum á hverjum degi og gerum það einnig í þessu til­viki,“ segir Ivar Moen, höf­uðs­maður í norska hernum í sam­tali við NRK.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár