"Sígaunastjórinn" dæmdur í fangelsi og gert að yfirgefa Danmörku

Gimi Levakovic, höfuðpaur einnar alræmdustu glæpa­fjölskyldu Danmerkur, var í gær dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi og gert að yfirgefa landið þegar afplánun lýkur. Levakovic, sem oft er kallaður "Sígauna­stjórinn" (e. Gypsy boss og d. Sigøjnerbossen) hlaut dóminn í héraðs­dómi í Næstved fyrir lífláts­hótanir og vopnaburð. Hann varð einn umtalaðasti maður Danmerkur í janúar síðastliðnum eftir að danska sjónvarps­stöðin TV2 sýndi tvo sjónvarps­þætti um Levakovic fjöl­skylduna. Þættirnir voru gerðir með samþykki fjöl­skyldunnar og þar eru löng viðtöl við Gimi Levakovic og Jura bróðurson hans sem nú afplánar 5 ára dóm og verður vísað úr landi.

Kjarninn fjallaði ítarlega um fjöl­skylduna í frétta­skýringu í janúar síðastliðnum.

Levakovic var vægast sagt ósáttur með dóminn. Á Facebook-síðu um hann eru birt harðorð skilaboð eftir að dómurinn lá fyrir. Skila­boðin segja að hann ætli að taka alla fríu peninganna sem hann hafi komist yfir með sér og biður Dani að muna að hann muni snúa aftur. Og í þetta sinn ætli hann sér að taka með alla Rúmeníu. Með skila­boðunum er birt mynd með áletruninni „Fuck the system“. Vert er að veita því athygli að á Facebook er Gimi kallaður Gimi ´the Boss´ Levakovic og hann titlaður sem stjórn­málamann.





Fuck jer Danmark og jeres dansker racist Pia Kjers­gard. Jeg all­er­ede tager med mig jeres gratis penge, fuck jer. Men HUSK Danmark, jeg kommer til­bage, og ikke kun mig, men hele rumænien !! Tak og vel­bekomme.

Posted by Gimi 'the Boss' Levakovic on Thursday, August 6, 2015

Ætlaði alltaf að vera gangster

Í þáttunum um fjöl­skylduna sem sýndir voru í upphafi árs segist Jura, sem er 26 ára, alltaf hafa ætlað sér að verða gangster, það verði hver að finna sína fjöl í lífinu og þetta sé sín fjöl. Hann lýsti mikilli óánægju með að verða sendur með rútu til Króatíu þegar afplánun lýkur, slíkt væri viðbótar­refsing. Hann sagði jafnframt að hann hefði verið átta ára þegar hann fór að fara með föður sínum í ráns­ferðir, til að læra aðferðirnar, og hann hefði sjálfur byrjað að stela þegar hann var 13 ára.

Í umfjöllun Kjarnans um sjónvarps­þættina í janúar kom meðal annars fram þegar ættar­höfuðið Gimi Levakovic var spurður hvernig á því stæði að hann hefði aldrei unnið neitt þá svaraði hann því til að hann áliti að til þess að fá vinnu þyrfti menntun og hana hefði hann ekki. „Hefurðu aldrei íhugað að afla þér menntunar?“ spurði sjónvarps­maðurinn. „Nei, aldrei“ var svarið. Gimi á tvö ung börn á skóla­aldri, hvorugt þeirra gengur þó í skóla, hann segist að sjálfsögðu vilja að börnin fái menntun en þetta sé nú svona. Ein tengda­dóttir bróður hans er 16 ára og á eitt barn, hún hefur ekki verið í skóla í mörg ár. Gimi sagði að ef unglings­stúlka væri í skóla heyrði hún talað um kynlíf og fjöl­skyldan væri jafnframt viss um að hún ætti kærasta í skólanum, slíkt gengi ekki. Þegar hann var minntur á skóla­skylduna sagði hann; „Við sígaunar höfum okkar siði og venjur og Danir verða bara að virða það.“ Hann lagði líka mikla áherslu á gildi fjöl­skyldunnar sem stæði saman í blíðu og stríðu, „sígaunar eru friðsamir“ sagði hann. Sleppti því hins vegar alveg að minnast á að hann barði fyrr­verandi konu sína til óbóta og keyrði síðar, eftir að þau voru skilin, á hana þar sem hún var á gangi og stór­slasaði hana.

Hægt er að horfa á þættina í heild sinni hér að neðan:

Fyrri hluti:

https://www.youtube.com/watch?v=8Al8bwpi6gc

Seinni hluti:

https://www.youtube.com/watch?v=BPuQZGXbyyY


Að gefnu til­efni: Talað er um sígauna en ekki Rómafólk í þess­ari grein. Það er gert vegna þess að í við­tölum við með­limi fjöl­skyld­unnar í Danmörku tala þeir um sjálfa sig sem sígauna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár