Sárt að sjá hvernig fór fyrir stjórnarskrármálum

Salvör Nordal segir sárt að sjá hversu mikil átök voru um stjórn­ar­skrár­mál. Í gær rann út frestur til þess að breyta stjórn­ar­skránni með auð­veld­ari hætti.

Bráða­birgða­á­kvæði í stjórn­ar­skránni, sem kvað á um að auð­veld­ara væri að breyta stjórn­ar­skránni en venju­lega, rann út í gær, 30. apríl 2017. Ákvæðið var sam­þykkt sem mála­miðlun í stjórn­ar­skrár­breyt­ingum á Alþingi í júlí árið 2013. Með bráða­birgða­á­kvæð­inu gafst tæp­lega fjög­urra ára frestur til þess að breyta stjórn­ar­skránni án þess að þurfa að rjúfa þing og boða til nýrra kosn­inga.

Bráða­birgða­á­kvæðið var sett fram sem mála­miðlun og til þess að ná sem víð­tæk­astri sátt á Alþingi um fram­hald og lyktir end­ur­skoð­un­ar­innar á stjórn­ar­skránni, sem stóð á árunum eftir hrun og varð að nýrri stjórn­ar­skrá stjórn­laga­ráðs. Haldin var þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um til­lögur stjórn­laga­ráðs, þar sem til­lög­urnar voru sam­þykkt­ar.

Salvör Nordal, for­stöðu­maður Sið­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands, var for­maður stjórn­laga­ráðs. Hún segir í sam­tali við RÚV í dag að henni þyki leitt og sárt að sjá hvernig málið hafi farið á und­an­förnum árum. „Og í raun hafa tvö kjör­tíma­bil liðið og það þriðja er hafið án þess að nokkrar breyt­ingar hafi verið gerðar og það er sárt að sjá hvað það hafi verið mikil átök og að það hafi ekki verið hægt að þoka mál­inu áfram.“

Hún segir að góðir mögu­leikar hafi verið á því að gera breyt­ingar og virkja almenn­ing betur. „Auðvitað vissi maður að það voru deilur um málið þegar við vorum að vinna vinn­una en mér finnst það hafa verið ótrú­lega erfitt að sjá það lenda í þessum miklu skot­gröfum vegna þess að það voru mögu­leikar á því að gera ýmsar breyt­ingar og það hefði verið hægt að nýta þessa hugsun og hug­mynd um að virkja almenn­ing miklu betur í gegnum allt ferlið og það finnst mér bara sárt að sjá þegar allur þessi tími er lið­inn.“

Þegar ljóst var undir lok kjör­tíma­bils­ins 2009 til 2013 að ekki myndi takast að koma stjórn­ar­skrár­breyt­ingum í gegn fyrir kosn­ingar var til­lagan um bráða­birgða­á­kvæðið flutt. Í henni kom fram að „sam­þykki Alþingi frum­varp til laga um breyt­ingu á stjórn­ar­skrá með minnst 3/5 hlutum greiddra atkvæða skal það borið undir atkvæði allra kosn­ing­ar­bærra manna í land­inu til sam­þykktar eða synj­un­ar.“ Ef frum­varpið væri sam­þykkt með 3/5 hlutum greiddra atkvæða í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni ætti for­set­inn að stað­festa frum­varpið innan tveggja vikna og þar með yrði það orðið að gildum stjórn­ar­skip­un­ar­lög­um.

Þannig var kom­ist hjá því að rjúfa þyrfti þing til að breyta stjórn­ar­skránni, en í stað­inn var kveðið á um auk­inn meiri­hluta bæði á þingi og meðal þjóð­ar­inn­ar. Sam­hliða þessu var flutt þings­á­lykt­un­ar­til­laga um að Alþingi fæli fimm manna nefnd að vinna áfram að heild­ar­end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­inn­ar.

Þessi til­laga var lögð fram í tvígang og var sam­þykkt eftir að ný rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks hafði tekið við völdum eftir kosn­ing­arnar 2013. Síðan þá hefur verið unnið að stjórn­ar­skrár­breyt­ingum í stjórn­ar­skrár­nefnd, og Sig­urður Ingi Jóhanns­son lagði fram breyt­ing­ar­til­lögur að stjórn­ar­skránni í fyrra, þegar hann var for­sæt­is­ráð­herra. Ekk­ert hefur hins vegar orðið af breyt­ing­un­um, og nú mun frest­ur­inn til að gera breyt­ingar með þessum hætti renna út á sunnu­dag án þess að svo verð­i.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár