Tíu ár liðin frá því að fyrsta myndbandið var sett inn á YouTube

Í gær voru liðin tíu ár frá því að fyrsta mynd­bandið var sett inn á YouTube, en þann 23. apríl árið 2005, setti annar stofnandi vefsíðunnar, Jawed Karim, inn mynd­bandið „Me at the zoo.“

Á mynd­bandinu, sem er næstum tuttugu sekúndur að lengd og hefur verið skoðað ríflega 21 milljón sinnum, lýsir Karim hversu langa rana fílar séu með og hvað þeir séu svalir. Í bakgrunni má heyra í geitum, en mynd­bandið var skotið af skóla­félaga Karim, sem síðar varð prófessor í verkfræði.

Vinsældir YouTube á heimsvísu eru gríðarlegar, og margar heims­þekktar stjörnur hafa stigið sín fyrstu skref með því að birta myndbönd af sér á vefsíðunni.

Sjá mynd­bandið hér að neðan. Sjón er sögu ríkari, eða ekki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár