Ríkissáttasemjara og fyrrverandi dómsmálaráðherra á meðal umsækjenda

Bryndís Hlöðvers­dóttir, rík­is­sátta­semj­ari, og Ragna Árna­dóttir, aðstoð­ar­for­stjóri Lands­virkj­unar og fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, eru meðal tólf umsækj­enda um emb­ætti skrif­stofu­stjóra Alþingis.

Bryndís Hlöðversdóttir ríkissáttasemjara og Ragna Árnadóttir aðstoðarforstjóri landsvirkjunar.
Bryndís Hlöðvers­dóttir rík­is­sátta­semj­ara og Ragna Árna­dóttir aðstoð­ar­for­stjóri lands­virkj­unar. Mynd: Samsett mynd

For­sætis­nefnd Alþingis aug­lýsti þann 20. apríl síð­ast­lið­inn emb­ætti skrif­stofu­stjóra Alþingis laust til umsóknar, en nefndin ræður skrif­stofu­stjóra Alþingis til sex ára í senn. Alls bár­ust tólf umsóknir en nýr skrif­stofu­stjóri Alþingis tekur við emb­ætt­inu þann 1. sept­em­ber næst­kom­andi.

Ragna Árna­dóttir, aðstoð­ar­for­stjóri Lands­virkj­unar og fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, Bryndís Hlöðvers­dóttir, rík­is­sátta­semj­ara og Kjartan Björg­vins­son hér­aðs­dóm­ari eru á meðal umsækj­anda.

Auk Bryn­dísar, Kjartans og Rögnu sóttu átta aðrir um stöð­una: Ást­hildur Magn­ús­dóttir, kenn­ari. Hildur Eva Sig­urð­ar­dóttir, for­stöðu­maður, Hilmar Þórð­ar­son, fv. sviðs­stjóri rekstr­ar­sviðs, Inga Guðrún Birg­is­dóttir, mannauðs­stjóri, Ingvar Þór Sig­urðs­son, for­stöðu­maður, Kristian Guttesen, aðjunkt, Sandra Stojkovic Hinic, verk­efn­is­stjóri, Sigrún Brynja Ein­ars­dóttir, skrif­stofu­stjóri, Þórdís Sæv­ars­dóttir, kenn­ari.

Skrifstofustjóri hefur umsjón með fjárreiðum þingsins

Skrif­stofu­stjóri stjórnar skrif­stofu Alþingis, fram­kvæmdum á vegum þings­ins og hefur umsjón með fjár­reiðum þess og eignum í umboði for­seta. Þing­funda­svið, nefnda­svið og starfs­manna­skrif­stofa þings­ins heyra beint undir skrif­stofu­stjóra. Skrif­stofu­stjóri situr fundi for­sætis­nefndar og er for­seta og nefnd­inni til aðstoðar í öllu er varðar stjórn þings­ins. Aðsetur skrif­stofu­stjóra er á 2. hæð Alþing­is­húss­ins og á 2. hæð Skjald­breiðar, Kirkju­stræti 8. Um starf hans eru nán­ari ákvæði í þing­sköpum Alþingis. Helgi Bern­ód­us­son hefur gegnt emb­ætti skrif­stofu­stjóri Alþingis frá árinu 2005 en hann lætur nú af störfum eftir ára­tuga starf á Alþingi.

Á vef Alþingis segir að for­sætis­nefnd hafi falið þremur úr sínum hóp að hafa umsjón með ráðn­ing­ar­ferl­inu fyrir hönd nefnd­ar­innar. Und­ir­nefnd­ina skipa Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, og vara­for­set­arnir Guðjón Brjáns­son og Bryndís Har­alds­dóttir.

Auk þess var skipuð þriggja manna hæfn­is­nefnd til að fara yfir umsóknir, meta hvaða umsækj­endum verður boðið í við­tal, ann­ast við­töl, meta umsagnir og gera til­lögu til und­ir­nefndar for­sætis­nefndar um þá sem hún telur hæf­asta til að gegna starf­inu. Hæfn­is­nefnd­ina skipa Þor­steinn Magn­ús­son, vara­skrif­stofu­stjóri Alþingis, sem er for­maður, Guðrún Jóhanna Guð­munds­dóttir, sér­fræð­ingur hjá Kjara- og mannauðs­sýslu rík­is­ins og Hulda Ragn­heiður Árna­dóttir, fram­kvæmda­stjóri. Starfs­maður nefnd­ar­innar er Heiðrún Páls­dóttir, rit­ari for­seta Alþingis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár