PFS telur Mílu hafa brotið af sér

Póst-og fjarskipta­stofnun telur Mílu, sem er dóttur­fyrirtæki Símans, ekki hafa sinnt upplýsinga­skyldu sinni í ljósi markaðs­ráðandi stöðu sinnar.

Fjarskiptalagnir.
Fjar­skipta­lagnir. Mynd: Gagnaveita Reykjavíkur

Póst-og fjarskipta­stofnun tekur undir Gagna­veitu Reykja­víkur um að Míla, sem er dóttur­félag Símans, hafi ekki farið að samkeppnis­reglum með ákvörðun sinni um að leggja fjarskipta­lagnir í Setbergs­landi í Hafnar­firði. Þetta kemur fram í frétta­tilkynningu frá Gagna­veitu Reykja­víkur.

Í tilkynningunni er ákvörðun Póst-og fjarskipta­stofnunnar (PFS) rakin, en samkvæmt henni fór Míla gegn skilyrðum stofnunarinnar sem sett voru á fyrir­tækið árið 2014. Skilyrðin voru sett á þar sem Míla var skilgreint sem fjarskipta­fyrirtæki með umtals­verðan markaðs­ráðandi styrk og þyrfti því að fylgja reglum varðandi upplýsinga­gjöf í verkefnum sínum.

Samkvæmt ákvörðun PFS taldi stofnunin sig ekki geta leiðbeint sveitar­stjórnum um hvers konar kvaðir hvíla á Mílu, en sveitar­stjórnirnar veita endanleg leyfi fyrir jarðvegs­framkvæmdum. FPS sagðist hins vegar hafa sent gögn málsins áfram til Samkeppnis­eftirlitsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár