Ísland með mesta deilihagkerfið í heimi

Þróun og vægi deili­hag­kerf­is­ins hér á landi er mun meira en í öðrum löndum, sam­kvæmt nýrri mæl­ingu. Þar er helsta ástæðan bak við sér­stöðu Íslands sögð vera vegna ferða­þjón­ust­unnar.á

Mikill fjöldi ferðamanna hér á landi er sögð vera meginástæða mikils umfangs deilihagkerfisins.
Mikill fjöldi ferða­manna hér á landi er sögð vera meg­in­á­stæða mik­ils umfangs deili­hag­kerf­is­ins. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Umfang deili­hag­kerf­is­ins á Íslandi er mest í heimi, sam­kvæmt nýjum mæli­kvarða frá sænsku hug­veit­unni Timbro. Hug­veitan nefnir sér­stak­lega þátt ferða­þjón­ust­unnar í þessu sam­hengi og segir hana hafa verið grund­völl fyrir vöxt deili­hag­kerf­is­ins hér á landi. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Timbro.

Mæli­kvarð­inn, Timbro Sharing Economy Index (TSEI), var mældur í alls 213 löndum og byggir á rann­sókn á 4500 fyr­ir­tækjum. 286 þess­arra fyr­ir­tækja eru skil­greind sem deili­hag­kerf­is­fyr­ir­tæki út frá skil­grein­ingu hug­veit­unnar. Stærst þeirra var Airbnb, með um það bil 1,5 milljón virkra gest­gjafa. Löndin voru svo röðuð upp eftir TSEI-mæli­kvarð­anum, en þar var Ísland langefst.

Smáríki voru öll áber­andi í efstu sætum list­ans, en á eftir Íslandi fylgdu Turks-og Caicoseyjar, Malta, Svart­fjalla­land og Nýja-Sjáland. Meðal iðn­ríkja sem skor­uðu lægst á list­anum voru svo Lúx­em­borg og Slóvakía.

Ferðaþjónustan meginþátturinn

Samkvæmt Timbro ein­kennir mik­ill ferða­manna­iðn­aður, góðir inn­viðir í net­þjón­ustu og efna­hags­legt frelsi lönd með háa TSEI-ein­kunn. Hug­veitan skoð­aði einnig helstu áhrifa­þætt­ina á Íslandi, en sam­kvæmt henni má fyrst og fremst skýra stærð deili­hag­kerf­is­ins með þeim mikla fjölda ferða­manna sem hingað sækja á ári hverju. Einnig segir í skýrsl­unni að sveigj­an­leiki deili­hag­kerf­is­ins hafi verið meg­in­þáttur í því að halda í við þá miklu eft­ir­spurn­ar­aukn­ingu í íslenska þjón­ustu sem átti sér stað fyrir tæpum ára­tug með risi ferða­þjón­ust­unnar og þannig stuðlað að góð­ær­inu sem fylgdi því.

Aðal­höf­undur skýrsl­unnar er hag­fræð­ing­ur­inn Alex­ander Funcke hjá háskól­anum í Penn­syl­vaníu, en Gylfi Ólafsson, for­stjóri Heil­brigð­is­stofn­unar Vest­fjarða og fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður Bene­dikts Jóhann­es­sonar fjár­mála­ráð­herra, vann einnig að henni. Skýrslan var svo gefin út af sænsku hug­veit­unni Timbro, sem sér­hæfir sig í málum tengdum ein­stak­lings-og mark­aðs­frelsi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár