Trump krefur bandaríska skattinn um 10 milljarða dollara

Donald Trump, forseti Banda­ríkjanna, hefur stefnt bandaríska skattinum, sem lútir stjórn ríkis­stjórnar hans. Trump vill 10 milljarða dala vegna leka á skatt­framtölum hans sem sýndu að hann greiddi sáralítið í tekju­skatt.

Donald Trump forseti hefur höfðað mál gegn bandarísku skatt­stofunni (IRS) og krefst 10 milljarða dala, jafnvirði 1.240 milljarða króna, vegna meints leka á skatt­framtölum sem hann segir að hafi skaðað viðskipti sín.

Í máls­höfðuninni – sem forsetinn höfðaði í eigin nafni ásamt tveimur elstu sonum sínum, Eric og Donald Jr., og fjölskyldu­fyrirtæki þeirra, The Trump Organization – sagði að skatturinn og fjármála­ráðuneyti Banda­ríkjanna „bæri skylda til að vernda og tryggja trúnaðar­gögn um skatt­framtöl stefnenda“.

Skatt­framtöl Trumps voru mikið í umræðunni á fyrsta kjör­tímabili hans eftir að hann braut hefð og neitaði að birta þau sem fram­bjóðandi.

Skatta­skjölunum var lekið til fjölmiðla af Charles „Chaz“ Littlejohn, fyrr­verandi starfs­manni skattsins, sem starfaði frá maí 2019 til september 2020, samkvæmt máls­höfðuninni.

„Sakborningar hafa valdið stefnendum mannorðs­tjóni og fjárhags­legum skaða, opinberri niður­lægingu, órétt­mætri svörtun á viðskipta­orðspori þeirra, sýnt þá í fölsku ljósi og haft neikvæð …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Græðgin á sér engin takmörk í huga þessa manns. Væri ekki nær að taka meiri þátt í leysa fjárhagsvandræði Sameinuðu þjóðanna? DT ákvað að skerða verulega og jafnvel fella niður greiðslur til starfsemi Sameinuðu þjóðanna sem ramba á barmi gjaldþrots?
    0
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Það er þrennt sem einkennir stjórn USA í dag, glæpir. Spilling og grimmd. Því miður eru of margir stjórnmálamenn og líka almenningur sem virðist hallast of mikið að þessum gildum í okkar heimshluta líka.
    12
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár