Forsetaþáttur Jóns Gnarr óvinsæll: „Þetta er bara ömurlegur þáttur“

Einungis 2,9 prósent lands­manna horfðu á fyrsta þátt Ísland Today, nýjan spjall­þátt Jóns Gnarr. Flestir fjöl­miðlar fjölluðu um þáttinn í aðdrag­anda hans. „Ég nátt­úrlega brotnaði saman og hágrét,“ segir Jón.

Einungis 2,9 prósent lands­manna horfðu á fyrsta þátt Ísland Today, spjall­þátt Jóns Gnarr, föstu­daginn 15. janúar síðastliðinn. Það er talsvert minna áhorf en Ísland í dag fékk alla þá viku en til saman­burðar horfðu 8,1 prósent lands­manna á þáttinn daginn áður. Þetta kemur fram í tölum Gallup um áhorf á Ísland í dag og Kastljós. Í þessari sömu viku var sýnt viðtal við Kvía­bryggju­fanganna Ólaf Ólafsson, Magnús Guðmundsson og Sigurð Einarsson sem vakti mikla athygli. Sá þáttur fékk 15,1 prósent áhorf. Vert er að taka fram að þetta sama föstudags­kvöld var lands­leikur Íslands gegn Noregi í handbolta sýndur á RÚV. Þeim leik var þó lokið þegar þáttur Jóns byrjaði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár