Björn Leví: Höfum hjakkað í sama farinu

„Á undan­förnum árum höfum við verið að hjakka í sama farinu. Við höfum verið að nýta okkur þennan enn eina hvalreka sem ferða­þjónustan hefur verið,“ segir þingmaður Pírata.

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, telur að nýsköpunar­aðgerðir stjórn­valda nái ekki yfir þann gríðar­lega fjölda fólks sem hefur orðið atvinnu­laust og leitar nú að vinnu. „Þess vegna þarf nú enn aukið átak í nýsköpun, til þess að nýta tækifærið sem þetta svigrúm gefur. Á undan­förnum árum höfum við verið að hjakka í sama farinu. Við höfum verið að nýta okkur þennan enn eina hvalreka sem ferða­þjónustan hefur verið – eins og til að mynda síldar­ævintýrið, álið og .com-bólan var fyrir okkur. Alltaf grípum við þessi tækifæri sem gefast, við rennum út þá öldu einhvern veginn en spyrjum ekki hvað gerist þegar sú alda klárast. Við lendum alltaf í dýfu eftir það, í staðinn fyrir að aldan fjari út á föstu landi þar sem við getum gengið án þess að falla í öldu­dalinn.“

Þetta var meðal þess sem kom fram í viðtali við Björn Leví í vikunni en Kjarninn talaði við fulltrúa í stjórnar­andstöðunni til þess að kanna hvernig þeir sæju fram­tíðina fyrir sér – og hvaða leiðir væru bestar út úr þessu ástandi. Fyrstur í röðinni var þingmaður Pírata.

Björn Leví segir að vissulega séu óhefðbundnar ástæður fyrir því að ástandið sé erfitt núna en hann telur að það hafi þó þrátt fyrir það verið fyrir­sjáanlegt. „Það var í fyrra endur­skoðuð fjármála­stefna og allir umsagnar­aðilar sögðu: Það er að koma dýfa. Þá var alltaf sagt að við værum að fara í mjúka lendingu en það var ekkert sem sýndi fram á það. Það var einungis ágiskun.“

Hann segir þess vegna að ástandið væri erfitt efnahags­lega á Íslandi núna hvort sem COVID-19 sjúk­dómurinn hefði riðið yfir heiminn eður ei. „En að sjálfsögðu ekki af sömu stærðar­gráðu – alls ekki – en skorturinn á fram­tíðarsýn stjórn­valda er algjör­lega sá sami. Það hefði komið lægð, eins og allir voru að benda á og búist var við og fjármála­stefnan endur­speglaði þá lægð, en það var enginn sýn um það hvernig við ætluðum annað hvort að koma í veg fyrir lægðina eða hvernig við ætluðum að stíga upp úr henni. Öll spámódel gerðu ráð fyrir því að við yrðum komin í eðlilegan hagvöxt eftir tvö ár. En það segja öll spámódel alltaf og þá erum við bara að vonast til þess að allt gerist sjálf­krafa.“

Þannig búist stjórn­völd við því að lægðin klárist eftir eitt til tvö ár. Hann segir þó að þetta sé rétt ályktun að vissu leyti vegna þess að Ísland sé ríkt land – og telur hann að í raun sé einkennilegt að allir Íslendingar séu ekki ríkir vegna þessa ríkidæmis. „Við erum nú að taka lán frá framtíðar­kynslóðum og við munum hafa efni á því láni. Það er enginn efi um það en þegar við tökum lán frá fram­tíðinni þá eigum við að nota það til þess að byggja upp arðsemi til að greiða það lán til baka þannig að næstu kynslóðir þurfi ekki að greiða okkar skuldir. Við þurfum að gefa þeim tækifæri til þess að fá arð af þeirri fjár­festingu sem við fengum að láni frá þeim til þess að endur­greiða lánið. Þannig er hægt að halda sömu réttindum og þjónustu þrátt fyrir að borga lánið sem við þurftum að nota til þess að brúa þetta bil.“

Það sem vantar í aðgerðir ríkis­stjórnarinnar, að mati Björns Levís, er þessi arðsemis­fjárfesting.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár