Kári og Iðunn verða aðstoðarmenn Svandísar

Svandís Svav­ars­dóttir sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra hefur ráðið þau Kára Gautason og Iðunni Garð­ars­dóttur sem aðstoð­ar­menn.

Iðunn Garðarsdóttir og Kári Gautason verða aðstoðarmenn Svandísar Svavarsdóttur í atvinnuvegaráðuneytinu.
Iðunn Garð­ars­dóttir og Kári Gautason verða aðstoð­ar­menn Svan­dísar Svav­ars­dóttur í atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu. Mynd: Af vef stjórnarráðsins.

Kári Gautason og Iðunn Garð­ars­dóttir hafa verið ráðin sem aðstoð­ar­menn Svan­dísar Svav­ars­dóttur sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Kári hefur störf 10. jan­úar, en Iðunn hefur þegar hafið störf og fylgdi ráð­herra úr heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu í dag.

Kári Gautason er fæddur á Akureyri árið 1989 og ólst upp á Grænalæk í Vopna­firði. Hann er stúd­ent frá Mennta­skól­anum á Akureyri. Hann lauk BS prófi í búvís­indum frá Land­bún­að­ar­há­skól­anum á Hvann­eyri árið 2013, og meistara­gráðu í búvís­indum með áherslu á erfða­fræði frá Árósa­há­skóla árið 2017.

Kári starf­aði sem bóndi árin 2013 til 2015, sem ráðu­nautur í loð­dýra­rækt í hluta­starfi 2013 til 2017 og var fram­kvæmda­stjóri þing­flokks VG árin 2018-2020. Seinast starf­aði Kári sem sér­fræð­ingur og stað­geng­ill fram­kvæmda­stjóra hjá Bænda­sam­tökum Íslands og sem stjórn­ar­maður í stjórn Byggða­stofn­unar. Hann lætur nú af þeim störfum til að ger­ast aðstoð­ar­maður ráð­herra. Kári er einnig annar vara­þing­maður VG í Norð­aust­ur­kjör­dæmi.

Iðunn Garð­ars­dóttir var aðstoð­ar­maður Svan­dísar sem heil­brigð­is­ráð­herra frá árinu 2017 og fylgir Svandísi nú sem áður segir í nýtt ráðu­neyti. Iðunn er fædd í Reykja­vík árið 1989. Hún er stúd­ent frá Mennta­skól­anum við Hamra­hlið, lauk BA prófi í íslensku frá Háskóla Íslands árið 2013, BA prófi í lög­fræði frá sama skóla árið 2015 og meist­ara­prófi í lög­fræði frá Háskóla Íslands vorið 2017. Iðunn starf­aði sem lög­fræð­ingur hjá lög­manns­stof­unni Juris áður en hún hóf störf í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu.

Iðunn var virk í starfi Röskvu innan Háskóla Íslands, var for­maður félags­ins árin 2012-2013 og sat í Stúd­enta­ráði og Háskóla­ráði fyrir hönd fylk­ing­ar­innar. Hún situr í mál­nefnd Háskóla Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár