Framleiðsluverðsvísitalan í Þýskalandi tæpum 46 prósentum hærri en fyrir ári

Raforku­verðs­hækkanir í Þýska­landi skýra mikla og ófyrirséða hækkun á framleiðslu­verðs­vísitölunni í landinu. Á sama tíma berast fregnir af því að þýska ríkið hafi náð samkomu­lagi um þjóð­nýtingu Uniper, sem er stærsti gasinn­flytj­andi landsins.

Olaf Scholz forsætisráðherra Þýskalands og leiðtogi Sósíaldemókrata.
Olaf Scholz for­sæt­is­ráð­herra Þýska­lands og leið­togi Sós­í­alde­mókrata. Mynd: EPA

Þeim sem fylgjast með þýskum hagtölum svelgdist eflaust sumum á morgun­kaffinu í morgun, er í ljós kom að framleiðslu­verðs­vísitalan, sem gefur til kynna breytingar á framleiðslu­kostnaði í þýskum iðnaði, reis um heil 7,9 prósent á milli mánaða og er nú 45,8 prósentum hærri en í ágúst­mánuði í fyrra.

Í frétta­tilkynningu frá þýsku hagstofunni segir að hækkun vísi­tölunnar á 12 mánaða tímabili hafi aldrei verið meiri en nú mælist og að sömuleiðis hafi hækkunin á milli mánaða aldrei verið meiri.

Samkvæmt umfjöllun Reuters-frétta­stofunnar kom hækkunin á óvart, en grein­endur höfðu búist við því að vísitalan hækkaði um 1,6 prósent á milli mánaða og að 12 mánaða hækkun yrði rúm 37 prósent. Annað kom á daginn.

Orkuverð 139 prósent upp á milli ára

Orku­verðið í Þýska­landi er stærsta breytan sem vegur til hækkunar framleiðslu­verðs­vísi­tölunnar, en ef orku­verðið væri ekki inni í vísi­tölunni næmi hækkunin einungis 14 prósentum frá fyrra ári.

Orku­verðið hefur meira en tvöfaldast frá fyrra ári og nemur hækkun frá því í ágúst í fyrra nú 139 prósentum heilt yfir. Verð á raforku vegur þungt inn í þá vísitölu, og er sagt skýra hina óvæntu hækkun vísi­tölunnar, en raforku­verð er nú 174,9 prósentum hærra en það var í ágúst 2021 og hækkar um rúm 20 prósent á milli mánaða.

Þessi mikla hækkun á raforku nær þó ekki upp í þær miklu hækkanir sem orðið á jarðgasi, en jarðgas til dreifingar hefur hækkað í verði rúm 209 prósent frá því í ágúst í fyrra og það jarðgas sem selt er til orkuvera og iðnaðar enn meira.

Á sama tíma hafa jarðefna­eldneytis­afurðir hækkað um 37 prósent frá því í ágúst í fyrra, en verð á þeim lækkaði um 3,2 prósent á milli mánaða.

Ríkisstjórnin hyggst þjóðnýta Uniper

Jarðgas­innflytjendur í Þýska­landi hafa átt erfitt uppdráttar undan­farna mánuði og hefur hið opinbera þurft að stíga inn í til þess að fyrir­tækin geti haldið rekstri sínum gangandi. Að undan­förnu hefur verið sagt frá þreifingum þýsku ríkis­stjórnarinnar um að þjóðnýta stærstu fyrir­tækin í þessum geira.

Bloomberg segir frá í dag því að þýska stjórnin sé búin að komast að samkomu­lagi um þjóð­nýtingu Uniper, sem er stærsti innflytjandi landsins á jarðgasi. Þar sem að flæði gass frá Rússlandi hefur farið minnkandi hefur fyrir­tækið verið að tæta í gegnum sjóði sína til þess að kaupa gas á markaði til handa þýskum viðskipta­vinum og nú er svo komið að félagið, sem er í eigu finnska félagsins Fortum, er á barmi gjald­þrots.

Í frétt Bloomberg var vísað til heimilda um að bráðabirgða­samkomulag hefði náðst, en frétta­stofa Reuters fékk þau svör frá efnahags­ráðuneyti landsins að viðræður væru enn í gangi. „Þegar þeim lýkur, munum við láta ykkur vita,“ sagði í svari ráðuneytisins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár