Segist aðeins hafa haft aðgang að ráðherranetfangi

Össur Skarp­héðinsson sigraði í prófkjöri Samfylk­ing­ar­innar í Reykjavík. Viðurkennir að hafa beðið nýbúa um atkvæði sem utan­ríkis­ráðherra og úr netfangi ráðu­neyt­isins. Var með netfang á vegum Alþingis á sama tíma.

Össur Skarp­héðinsson, fyrr­verandi utan­ríkis­ráðherra, hafnar því að hafa boðið fólki íslenskan ríkis­borgararétt fyrir að kjósa sig í prófkjöri en viðurkennir að hafa sent nýbúum tölvupóst úr ráðherra­netfangi sínu vegna prófkjara Samfylkingarinnar árið 2012. 

Þetta kom fram í viðtali við Össur sem birtist á vef RÚV í gær. Haft er eftir honum að ráðherra­netfangið hafi verið það eina sem hafði aðgang að á þessum tíma. „Þar sem erfitt var að ná í allt þetta fólk í síma gripum við til þess að senda bréf og ég sendi nokkur úr þessu netfangi, af því að öðru var ekki til að dreifa,“ segir hann. 

Ráðherrar hafa bæði aðgang að netfangi á vegum Alþingis og netfangi á vegum ráðuneyta. Þegar próf­kjörin stóðu yfir árið 2012 var netfangið ossur@althingi.is gefið upp á vef Alþingis. Ekki kemur fram hvers vegna 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár