Mótmæla „skipan afturhaldsseggja með kvenfjandsamlegan boðskap“

Tæplega þúsund manns hafa skrifað undir áskorun til Katrínar Jakobs­dóttur um að víkja Jóni Gunnars­syni sem dómsmála­ráðherra. Baráttu­hópur gegn ofbeldis­menningu segir engar framfarir verða í málefnum þolenda ofbeldis með Jón sem ráðherra dómsmála.

Undirskriftalista hefur verið hrundið af stað af baráttuhópi gegn ofbeldismenningu til að hvetja til þess að Jón Gunnarsson hverfi burt úr dómsmálaráðuneytinu.
Und­ir­skrifta­lista hefur verið hrundið af stað af bar­áttu­hópi gegn ofbeld­is­menn­ingu til að hvetja til þess að Jón Gunn­ars­son hverfi burt úr dóms­mála­ráðu­neyt­inu. Mynd: Bára Huld Beck

Baráttu­hópur gegn ofbeldis­menningu hóf í gær undir­skrifta­söfnun þar sem þess er krafist að Jón Gunnarsson víki úr embætti dómsmála­ráðherra. Alls hafa tæplega 1.000 manns skrifað undir þegar um sólar­hringur er liðinn frá því að undir­skrifta­söfnunin hófst.

Í yfir­lýsingu frá hópnum, sem stofnaður var fyrr í haust á Facebook í því skyni m.a. að berjast gegn gerenda­meðvirkni og þöggun, segir að lítil von sé á úrbótum í málefnum þolenda ofbeldis með Jón sem dómsmála­ráðherra.

„Til að bæta afar gráu ofan á svart þá velur Jón Gunnarsson sér Brynjar Níelsson til aðstoðar. Brynjar sem hleypur til í hvert skipti sem einhver ýtir við eða bara rétt kitlar feðra­veldið.

Þó við reynum að hugga okkur við að þetta verði bara 18 mánuðir og vonum að ekki náist að gera óbætanlegan skaða á þeim tíma þá vitum við að nú þegar eru þolendur að berjast við kerfið og hafa engan tíma til að bíða eftir úrbótum, líf þeirra, heilsa og öryggi er nú þegar í hættu.“

Baráttu­hópur um ofbeldis­menningu er opinn hópur á Facebook og fylgjendur eru yfir fjögur þúsund.

Yfir­lýsinguna sem birt er með undir­skriftar­listanum má lesa í heild sinni hér:

Eftir að hafa séð tekin skref sl. ár í dómsmála­ráðuneytinu til að bæta kerfið fyrir þolendur ofbeldis er sorglegt að sjá nýja ríkis­stjórn skipa mann eins og Jón Gunnarsson í sæti dómsmála­ráðherra. Mann sem hefur stutt s.k. tálmunar/fangelsis­frumvarp. Jón Gunnarsson hefur sýnt hug sinn til kven­frelsis og sínar forn­fálegu hugmyndir á fleiri vegu í gegnum sína þing­mennsku m.a. þegar þungunar­rofs­frumvarpið var til umræðu.

Því miður er lítil sem engin von til þess að nauðsynlegar úrbætur verði á þessum tíma.

Baráttu­hópur gegn ofbeldis­menningu var stofnaður fyrir tveimur mánuðum að gefnu tilefni. Ofbeldi gegn konum og kynbundið ofbeldi er faraldur í okkar samfélagi og aðför að öryggi og heilsu kvenna. Þolendum er sagt að kæra en langflest mál eru felld niður áður en þau komast nokkru sinni í dómsal. Þolendur eiga það á hættu að gögn þeirra eru gerð opinber á almennum vettvangi.

Við krefjumst framfara sem nást ekki með skipan afturhalds­seggja með kven­fjandsamlegan boðskap sem æðstu yfirmanna dómsmála!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár