Sex lögreglustjórar í Túnis reknir eftir blóðbaðið

Forsætis­ráðherra Túnis, Habib Essid, hefur látið reka sex lögreglu­stjóra eftir árás liðsmanna Íslamska ríkisins (ISIS) á Bardo safnið í höfuð­borginni Túnis. Einn þriggja árásar­manna er enn á flótta, en Essid léta hafa eftir sér í morgun, að sá myndi „ekki komast langt“, að því er breska ríkis­útvarpið BBC greinir frá. Sá sem er eftir­lýstur heitir Yassine Abidi, og hefur innan­ríkis­ráðuneyti í Túnis þegar birt opinber­lega myndir af honum og óskað eftir hjálp frá almenningi.

Öryggis­sveitir hersins í Túnis felldu tvo af ódæðis­mönnunum. Í viðtölum hefur forsætis­ráðherrann sagt að lögreglan hefði ekki verið nægilega skilvirk þegar kæmi að því að gæta öryggis í safninu. Á því bæru lögreglu­stjórarnir ábyrgð, og því þyrftu þeir að víkja.

Hinn eftir­lýsti, sem gengur laus, Yassine Abidi. Mynd: Innan­ríkis­ráðuneytið í Túnis.

Mynd: Innanríkisráðuneytið í Túnis.
Mynd: Inn­an­rík­is­ráðu­neytið í Túnis.

Árásin á Bardo safnið er mikið áfall fyrir Túnis, sem á mikið undir ferða­þjónustu. Í árásinni voru 23 gestir á safninu drepnir, að mestu ferðamenn frá Evrópu­löndum. Forseti landsins, Beji Caid Essebsi, sagði á blaðamanna­fundi á laugar­daginn að allt yrði gert til að tryggja öryggi óbreyttra borgara, svo að ferðamenn víða um heim gætu heimsótt landsins og notið þess góða sem það hefði upp á að bjóða.

Ódæðis­mennirnir eru sagðir hafa fengið þjálfun í Líbýu, á svæði sem ISIS hefur á sínu valdi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár