Framkvæmdastjórn ESB vill frekari tengingar með strengjum

Framkvæmda­stjórn Evrópu­sambandsins (ESB) hefur sett fram tilmæli til aðildar­ríkja sambandsins þess efnis að þau efli samtenginar flutnings­kerfa raforku, m.a. með aukinni uppbyggingu sæstrengja. Þetta kemur fram á vef framkvæmda­stjórnar Evrópu­sambandsins, en Samorka, samtök orku- og veitu­fyrirtækja, gera einnig grein fyrir þessu á vef sínum.

Árið 2020 er hverju aðildar­ríki ætlað að búa að flutnings­getu til annarra ríkja á sem svarar a.m.k. tíu prósent allrar raforku sem framleidd er í landinu. Þessari stefnu er m.a. ætlað að efla orku­öryggi og bæta nýtingu raforku­kerfa, og minnka þar með þörfina á að auka vinnslu­getu raforku með virkjunum eða öðrum raforku­verum.

Tólf núverandi aðildar­ríkja ESB uppfylla ekki þessar kröfur í dag, m.a. eru það Bretland og Írland, segir á vef Samorku. Ætla má að þessar kröfur, auk kröfunnar um aukinn hlut endurnýjanlegra orkugjafa og aukið orku­öryggi, skýri þann áhuga sem bresk stjórn­völd hafa sýnt á tengingu um sæstreng við Ísland og fleiri ríki.

Engar ákvarðanir hafa verið teknar um hvort ráðist verði í lagningu sæstrengs til Íslands, en mikill áhugi er á framvæmdinni, ekki síst hjá fjár­festum í Bretlandi. Hörður Arnarson, forstjóri Lands­virkjun, hefur í ræðu sagt lagningu sæstrengs, og sölu á rafmagni um hann, mögulega geta verið stærsta viðskipta­tækifæri sem íslenska hagkerfið hafi staðið frammi fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár