Cristiano Ronaldo orðinn vinsælastur allra á Facebook

Portúgalska knattspyrnu­stórstirnið Cristiano Ronaldo, sem er ríkjandi besti leikmaður heims og leikur með Real Madrid á Spáni, er orðinn vinsælastur allra á Facebook. Alls hafa rúmlega 107 milljónir mann líkað við síðu hans. Nýverið tók hann fram úr söng­konunni Shakiru sem hafði verið vinsælust um lant skeið. Um fimm þúsund fleiri hafa líkað við síðu Ronaldo en Shakiru. Frá þessu er greint í Daily Mail.


Félag Ronaldo, Real Madrid, er í ell­efta sæt­inu á list­anum yfir vin­sæl­ustu Facebook síð­urnar, um 83 millj­ónir manns hafa líkað við síðu þess. Helsti and­stæð­ingur Real, Barcelona,er einu sæti ofar á list­anum.

Hinn besti leikmaður heims, Argentínu­maðurinn Lionel Messi sem leikur Barcelona, á töluvert í land að ná í skottið á Ronaldo á stærsta samfélags­miðli heimsins. Alls hafa 78 milljónir manna líkað við síðu Messi. Til að ná Ronaldo þyrftu til dæmis allir íbúar Saudí Arabíu að líka við síðu Messi, en þeir eru rétt rúmlega 30 milljónir.

Ronaldo er líka langvin­ælasti íþrótta­maður heims á öðrum samfélags­miðlum. Engin íþrótta­maður er með fleiri fylgjendur en hann á Twitter (alls fylgja 34 milljónir manns honum). Í öðru sæti, kannski nokkuð óvænt, er hinn fallna brasilíska stjarna Kaka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár