Breskir bankaskandalar hafa þurrkað út 60 prósent af hagnaðinum

Banka­skandalar í Bretlandi, það er greiðslur vegna lögbrota banka til ríkisins og viðskipta­vina, hafa þurrkað út um 60 prósent af hagnaði þeirra frá árinu 2011. Þetta kemur fram í skýrslu KPMG, sem nefnist A Paradox of Forces, sem Business Insider vitnar til.

Bankarnir Royal Bank of Scotland, Lloyds Banking Group, HSBC, Barclays og Standard Chartered hafa greitt samtals 57,6 milljarða Bandaríkja­dala vegna lögbrota og sátta­greiðslna frá árinu 2011.

Í skýrslu KPMG segir að þessar háu greiðslur séu farnar að hafa mikil áhrif á rekstur bankanna, ekki síst þar sem ekki sér fyrir endann á því að greiðslurnar muni hækka enn meira, þar sem fjölmörg lögbrot hafa ekki verið til lykta leidd í dómskerfi eða sáttferli ennþá.

Bill Micheal, yfirmaður fjármála­ráðgjafar KPMG, segir að bankar séu nú að fara í gegnum gríðar­lega hraðar og miklar breytingar, þar sem eftirlits­starfinu hefur verið breytt, tækninni fleytir fram og væntingar til fjármálastarfssemi í samfélaginu væru að breytast mikið. Hann segir breytingar sem þessar aðeins koma einu sinni í lífs­leiðinni, svo miklar séu þær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár