Neytendur bera kostnaðinn af háum launum og arðgreiðslum verslunarinnar

Mat­vöru­versl­anir í land­inu skil­uðu hund­raða millj­óna króna hagn­aði á síð­asta ári. Laun stjórn­enda þeirra eru talin í tugum millj­óna á árs­grund­velli. Á sama tíma hefur vöru­verð hækkað um hátt í tíu pró­sent. Neyt­endur njóta ekki auk­innar arð­semi í rekstri, sem meðal ann­ars verður til með því að þeir afgreiða sig sjálfir og draga þar með úr launa­kostn­aði.

Taka á sig vinnuna
Taka á sig vinn­una Við­skipta­vinir hafa í auknum mæli tekið á sig vinnu í versl­unum, með því að sjálfs­af­greiðsla hefur verið tekin upp í þeim. Ekki er að sjá að neyt­endur njóti þess í lægra vöru­verði.

Fram­kvæmda­stjórar stærstu mat­vöru­versl­ana lands­ins eru allir meðal efsta eina pró­sents­ins þegar horft er yil tekna lands­manna á síð­asta ári og námu launa­greiðslur þeirra tugum millj­óna á síð­asta ári. Hagnaður versl­an­anna er tal­inn í hund­ruðum millj­óna eða millj­örðum króna og þá hafa félögin sem reka þau greitt út gríðar háar arð­greiðslur til eig­enda sinna. Á sama tíma hefur vöru­verð hækkað um hátt í tíu pró­sent á árs­grund­velli með til­heyr­andi áhrifum á verð­bólgu og íslensk heim­ili. Formaður Neyt­enda­sam­tak­anna segir líf­eyr­is­sjóð­ina, sem stærstu eig­endur versl­an­anna, verða að hafa for­göngu um að launastrúktúr og arð­sem­is­kröfur verði end­ur­skoðuð. Verk­efn­is­stjóri verð­lags­eft­ir­lits ASÍ segir versl­un­ina hafa fullt svig­rúm til að halda vöru­verði niðri.

8,6%
Hækkun á mat­vöru á tólf mán­uðum

Árs­verð­bólga mæld­ist 9,7 pró­sent í lok síð­asta mán­aðar sam­kvæmt tölum Hagstofu Íslands. Stærsti áhrifa­þáttur auk­innar verð­bólgu er hækkun hús­næð­is­verðs en inn­lendar vörur hafa einnig hækkað um 8,7 pró­sent …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár