Fyrirtæki Íslendings metið á 300 milljarða króna

Davíð Helgason var einn stofnenda og er einn eigenda Unity Technologies, sem metið er á háar upphæðir þessi misserin.

Unity Technologies, sem fram­leiðir meðal annars verk­færi fyrir tölvu­leikja­fram­leið­end­ur, ekki síst leiki fyrir snjall­síma, er nú verðmetið á 2,8 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 300 milljörðum króna.

Wall Street Journal greindi frá þessu í gær, en fyrir­tækið er nú með fjár­mögnun á loka­stigum upp á 400 milljónir Bandaríkja­dala, eða um 40 milljarða króna, og er einka­fjárfesta­sjóðurinn Silver Lake að leiða þá fjár­mögnun, samkvæmt Wall Street Journal. Áður höfðu sjóðirnir Sequoia Capital og Draper Fisher Jurveston komið að fjár­mögnun fyrir­tækisins, að því er segir í umfjölluninni.

Íslend­ing­ur­inn Davíð Helga­son (lengst til hægri á með­fylgj­andi mynd) er einn eig­enda fyr­ir­tæk­is­ins og tók þátt í því að stofna það árið 2003, ásamt Dana og Þjóð­verja, Joachim Ante og Nicholas Franc­is. Fyr­ir­tækið hefur vaxið hratt á und­an­förnum árum og lengst af undir hans stjórn, í hlutverki forstjóra.

Í ítarlegu við­tali við Við­skipta­blaðið í júlí árið 2014 kom fram hjá Davíð að hann stýrði þá 300 manna fyr­ir­tæki í San Francisco sem teygði anga sína til 15 landa, en Davíð var þá for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins. Hann fór úr því hlutverki, síðar á árinu, en tók við öðru stjórnenda­hlutverki sem yfirmaður stefnu­mótunar og samskipta (EVP). Það hefur vaxið mikið síðan, og þykja framtíðar­horfur þess bjartar.

Fátt bendir til annars en að leikja­iðnaðurinn í heiminum muni vaxa hratt á næstu misserum, en spár gera ráð fyrir að heildar­veltan á næsta ári verði tæplega 110 milljarðar Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 11 þúsund milljörðum króna.

Davíð er sonur Sig­rúnar Dav­íðs­dótt­ur, frétta­konu RÚV, og hálf­bróðir Egils Helga­sonar fjöl­miðla­manns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár