Árás Trump „stórfengleg heift“ en endalokin óljós

Donald Trump réttlætir árás á Íran sem tilraun til að eyða ógn en markmiðin eru óljós og virðast breytast eftir því hvenær er spurt. Gagn­rýnendur telja óvissuna meðvitaða svo hægt sé að lýsa yfir sigri óháð niður­stöðu. Árásir eiga sér stað víðar á svæðinu.

Árásir víðar
Árásir víðar Reykj­ar­mökkur stígur upp frá stað þar sem Ísraelar gerðu loft­árás í suð­ur­hluta Beirút í morgun. Ísra­els­her gaf út nýjar rým­ing­ar­skipunir fyrir tugi staða í Líbanon þann 3. mars, þar á meðal aðvar­anir til íbúa í tveimur hverfum í suð­ur­hluta Beirút um að halda sig fjarri nokkrum bygg­ingum vegna yfir­vof­andi aðgerðar. Mynd: IBRAHIM AMRO / AFP

Donald Trump, forseti Banda­ríkjanna, segir að hann hafi ráðist á Íran til að eyða ógn. Hvernig hann sér fyrir sér að stríðinu muni ljúka er hins vegar óljóst. Eftir að æðsti leiðtogi Írans, Ayatollah Ali Khamenei, var drepinn í fyrstu árásunum á laugardag hvatti Trump Írani til að rísa upp gegn klerka­stjórninni. En Trump sagði fljótlega að stríðið, sem hann hóf ásamt Ísrael, snerist þegar allt kæmi til alls ekki um stjórnar­skipti.

Að lokum mætti kannski best draga saman markmið hernaðar­aðgerðarinnar sem Trump og Benjamin Netanyahu, forsætis­ráðherra Ísraels, hófu með nafninu sem Pentagon gaf henni: „Stórfengleg heift“.

Trump hefur hótað fjögurra vikna stríði eða lengur gegn þessu 90 milljóna landi, þar sem hundruð hafa verið tilkynnt látin, og varað við enn hrikalegri árásum. Vegna gagnrýni um óljós markmið lögðu Trump og helstu ráðgjafar hans fram fern markmið fyrir stríðið á mánudag–öll af hernaðar­legum toga. Þau fela í …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár