Flestir Bandaríkjamenn treysta Fox News

Sjónvarps­frétta­stöðin Fox News nýtur mest trausts í Banda­ríkjunum. Þetta er niður­staða könnunar sem Quinnipiac háskólinn birti í gær og vefurinn Politico greinir frá.

Alls sögðu 29 prósent aðspurðra að þeir treystu Fox News best. Í öðru sæti var CNN með 22 prósent, CBS News var í þriðja sæti með tíu prósent, ABC News í því fjórða með átta prósent og MSNBC í fimmta sæti með sjö prósent.

Um 20 prósent aðspurðra sögðust treysta frétta­flutningi Fox News mjög vel og 35 prósent sögðust treysta honum nokkuð vel.

Repúblíkanar elska Fox, Demókratar þola ekki stöðina


Það kemur kannski fáum á óvart er Fox News er mun vin­sælli hjá Repúblík­önum en Demókrötum í Banda­ríkj­unum. Alls sögð­ust 58 pró­sent Repúblík­ana treysta Fox News best. Fæstir í þeirra röðum treysta MSNBC, eða ein­ungis tvö pró­sent.

Demó­kratar eru hrifnastir af CNN. Alls treysta 32 prósent þeirra þeirri sjónvarpsstöð best. Þeir treysta hins vegar Fox News minnst allra, en einungis þrjú prósent Demókrata bera mest traust til þerirar sjónvarps­stöðvar.

Könnunin var framkvæmd daganna 26. febrúar til 2. Mars. Alls var haft samband við 1.286 kjósendur um öll Banda­ríkin og skekkju­mörk voru 2,7 prósent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár