Baráttan gegn dansi og diskó í Svíþjóð

Þótt Svíum finnist fátt skemmtilegra en að syngja saman í góðra vina hópi þarf heldur meira til að gleðin nái alla leið niður í tær. Enda er dans ekkert gamanmál og þá sérstak­lega þegar áfengi er haft um hönd. Þrátt fyrir að mörgum finnist reglur um helgihald helst til of strangar á Íslandi má finna sambærilegar reglur í Svíþjóð sem gilda allan ársins hring. Ein þeirra snýst um sérstakt leyfi sem eigendur veitinga- og skemmtistaða þurfa að ná sér í til að fólk megi dansa á staðnum. Á Íslandi er kannski bannað að spila bingó á föstu­daginn langa, en í Svíþjóð er bannað að dansa allan ársins hring nema hið opinbera hafi leyft það.

Þessar reglur eru ekki bara úreltar leifar fyrri tíma – heldur má enn finna dæmi þess að þær séu notaðar til að svipta staði vínveitingar­leyfi. Dagblaðið Dagens Nyheter birti meðal annars umsögn eftirlits­manns í borginni Gävle sem hafði skoðað veitinga­stað þar sem reglurnar virtust brotnar. „Á gólfinu voru milli 50-80 manns sem hreyfðu sig í takt við tónlistina með því sem aðeins er hægt að lýsa sem danslegum hreyfingum.“ Þessi formlega lýsing embættis­mannsins dregur upp skýra mynd af lögbroti sem vonandi tókst að kæfa í fæðingu.

Nú kunna einhverjir að halda að stjórn­málamenn átti sig á hversu úreltar þessar reglur eru. Reyndar voru þær einmitt ræddar á sænska þinginu fyrir páska og þurftu þingmenn að greiða atkvæði um það hvort ætti að fella þær úr gildi. Tillagan hlaut ekki hljóm­grunn þrátt fyrir ýmsir segðust í raun styðja hana. Talað var um að leggja nýja tillögu fyrir einhvern tímann síðar, en þangað til það gerist er enn bannað að dansa í Svíþjóð – nema með þar til gerðu leyfi.

Hér gefur að líta fólk sem hreyfir sig í takt við tónlist með því sem aðeins er hægt að lýsa sem danslegum hreyfingum.

Dansinn og diskóið


Segja má að dans­bannið hafi tengst diskó­inu sem margir ótt­uð­ust. Orðið diskó­tek á reyndar upp­runa sinn að rekja til Frakk­lands og var notað til að lýsa stöðum þar sem tón­list var spiluð af hljóm­plötum en ekki af hljóm­sveit. Við lok sjö­unda ára­tug­ar­ins urðu slíkir klúbbar sífellt vin­sælli og spruttu upp eins og gorkúlur í Svíþjóð. Þótti mörgum nóg um og árið 1968 ákvað sveita­stjórnin í Örebro að mynda diskó­teks­nefnd til að fylgj­ast með þess­ari nýj­ung. Ári seinna, eða í mars árið 1969, opn­aði svo Don Kíkóte sem var fyrsta diskó­tekið í opin­berri eigu í Svíþjóð. Hug­myndin var sú að opna ódýran dans­stað til þess að efna­m­inna fólk hefði sömu tæki­færi til að dansa eins og þeir sem rík­ari væru.

Hér gefur að líta fólk sem hreyfir sig í takt við tónlist með því sem aðeins er hægt að lýsa sem danslegum hreyfingum.
Hér gefur að líta fólk sem hreyfir sig í takt við tón­list með því sem aðeins er hægt að lýsa sem dans­legum hreyf­ingum.

Þessi ákvörðun féll hins vegar misvel í kramið hjá fólki og á næstu árum jókst gagnrýnin á diskó­tekin. Árið 1971 var í fyrsta sinn rætt um diskótek í sænska þinginu. Jafnaðar­maðurinn Åke Gustavsson benti á að ungdómur landsins eyddi um tveimur milljörðum sænskra króna á ári á diskótekum sem væri skýrt merki um arðrán og misnotkun á ungu fólki. Í grein í DN frá 1976 bendir svo þingmaður Vinstri flokksins á að diskó­tekin vinni gegn sænskri menningar­stefnu og að nauðsynlegt sé að berjast gegn áhrifum auðvalds­stefnunnar innan menningar­geirans. Árið1979 kröfðust samtök tónlistar­manna þess að sérstakur skattur yrði lagður á staði sem spiluðu tónlist af hljóm­plötum en biðu ekki upp á lifandi tónlist. Jafnframt var þess krafist að bannað yrði að selja áfengi á slíkum stöðum. Fólk þurfti sem sagt að velja á milli þess að dansa og að drekka.

Menningar­elítan virtist mótfallinn diskó­stöðunum sem buðu upp á hraðsoðna menningu frá útlöndum en þó voru undan­tekningar. Ungur rithöfundur og blaða­maður, Stig Larsson, skrifaði árið 1979 að diskótek væru mikilvæg því að ef hægt væri að tala um heimspeki diskóteka væri hún sú að fólk þyrfti ekki að hugsa, bara að vera. Og þannig hefur diskótekum og reyndar diskói verið lýst í gegnum tíðina, sem popp­tónlist sem gerir það að verkum að fætur hreyfast og axlir hristast, jafnvel án þess að fólk ætli sér að dansa.

Dansinn leiðir til slagsmála og óþrifnaðar


Þessar ósjálf­ráðu hreyf­ingar geta sem sagt kostað eig­endur skemmti­staða bæði rekstrar- og vín­veit­ing­ar­leyfið. Regl­urnar sem nú gilda voru settar 1993 en byggja á eldri reglum frá 1956 og þrátt fyrir ýmsar til­raunir hefur þeim ekki verið breytt. Fyrir þremur árum skipu­lagði hópur dans­á­huga­fólks mót­mæli í Stokk­hólmi þar sem ætl­unin var að dansa eftir götum mið­borg­ar­innar. Reyndar var sér­stak­lega tekið fram að hóp­ur­inn hefði aðeins leyfi til að ganga um göt­urnar – ekki hefði verið veitt leyfi til að dansa um göt­urnar. Tals­maður lög­regl­unnar sagði í sam­tali við sænska rík­is­út­varpið árið 2012 að hann von­að­ist til að regl­unum yrði ekki breytt. Hann hefði að sjálf­sögðu heilsu veit­inga­húsa­gesta í huga því eins og allir vissu snérist þetta fyrst og fremst um öryggi. „Við vitum að á dans­gólfum er oftar sleg­ist en á venju­legum veit­inga­stöðum, þar er meira drasl og fleiri upp­á­komur sem krefj­ast afskipta lög­reglu.“

Nú skal tekið fram að í Svíþjóð er afskaplega auðvelt að finna staði sem bæði bjóða upp á dans og áfengi og ekki þarf að leita lengi um helgar til að finna slagsmál eða drasl í kringum skemmtistaði. En kannski er staðreyndin sú að fátt ógni öryggi almennings meir en fólk sem brestur á með dansi í tíma og ótíma? Lögreglan hefur vísað til skelfilegra atburða á borð við bruna á diskóteki í Gautaborg árið 1998 þar sem 63 létust. Staðreyndin er hins vegar sú að staðir sem bjóða upp á skemmtanir þurfa að sjálfsögðu að uppfylla ákveðnra kröfur um til dæmis bruna­varnir og flótta­leiðir. Atburðurinn í Gautaborg varð vegna þess að slíkum kröfum var ekki fullnægt, ekki vegna þess að skipuleggjendur voru ekki með dansleyfi.

Miðað við hvernig stjórn­málamenn tala opinber­lega mætti ætla að mótmælin beri árangur því enginn virðist vilja verja reglurnar opinber­lega. Í það minnsta tókst P3 stöð sænska ríkis­útvarpsins ekki að fá nokkurn stjórn­málamann í viðtal til að tala gegn því að þær yrðu felldar úr gildi. Þar til það gerist – og það hlýtur bara að gerast – verða Svíar því að gæta sín á öllum kækjum og kippum því það er aldrei að vita nema lögreglan mæti á svæðið. Nema auðvitað að Kevin Bacon komi á undan henni.

https://www.youtube.com/watch?v=3T2FpCDlyNg

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár