ORK tekur yfir hlut í HS Orku

Stefnt er að því að fagfjárfesta­sjóðurinn ORK muni taka yfir hlut í HS Orku við uppgjör skulda­bréfs.

Reykjanesbær var upphaflegur eigandi kröfu á HS Orku.
Reykja­nes­bær var upp­haf­legur eig­andi kröfu á HS Orku.

Gert er ráð fyrir því að fagfjárfesta­sjóðurinn ORK muni taka yfir hlutabréf í HS Orku hf., samkvæmt tilkynningu til Kaup­hallar í dag.

ORK er útgefandi skuldabréfa­flokksins FORK 17 0901 sem er skráður hjá Nasdaq OMX á Íslandi. Stærsta eign sjóðsins er skulda­bréf sem gefið er út af félaginu Magma Energy Sweden AB, en félagið var stofnað sem sænskt dóttur­fyrirtæki Magma Energy.

Í tilkynningunni sem barst Kauphöll tæplega hálf fimm í dag kemur fram að Magma Energy Sweden AB og ORK eigi í samninga­viðræðum um uppgjör skulda­bréfsins, en loka­gjalddagi þess er 16. júlí næst­komandi. Við uppgjör er gert ráð fyrir að ORK muni yfirtaka hlutabréf í HS Orku hf. sem er hand­veðsett til tryggingar efndum skulda­bréfsins.

Kjarninn greindi frá því fyrir tveimur árum síðan að Alterra Group, sem áður hét Magma Energy hafi reynt að kaupa skulda­bréfið af ORK, en krafan hafi upphaf­lega verið í eigu Reykja­nesbæjar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár