Kjarninn mælir með: Samfélagsmiðill Jay Z, dauðarefsing og eyðsla Ronaldo

Við lifum sögulega tíma, ekki aðeins hér á landi, heldur ekki síðar erlendis. Ritstjórn Kjarnans fylgist vel með gangi mála, og má hér að neðan finna umfjallanir sem að mati ritstjórnar eru vandaðar, áhuga­verðar og skemmtilegar, hver með sínum ólíka hætti.

Jay Z vill að listamenn stýri ferðinni


Tón­list­mað­ur­inn Jay Z vill að lista­menn stjórni ferð­inni, þegar kemur að streymi, og vinnur nú að því að fram­þróa streymi­þjón­ustu sína þannig að hún verði sam­fé­lags­mið­ill sem fólk getur nýtt sér til þess að nálg­ast áhuga­verða tón­list. Hann hefur sjálfur verið að prófa sig áfram með nýtt tekju­módel, þar sem hann selur fólki aðgang að B-sides tón­leikum sínum. Quartz fjall­aði um þessa þróun á dög­unum.

Áhugaverð umfjöllun um merkilega tíma í tónlistar­heiminum.

Hvernig eyðir Ronaldo peningunum sínum?


Cristiano Ronaldo er einn launa­hæsti íþrótta­maður heims. Heild­ar­tekjur hans í fyrra námu 80 millj­ónum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur tíu millj­örðum króna. Business Insider setti saman stutt mynd­band, þar sem því er svarað hvaðan þessi magn­aði portú­galski knatt­spyrnu­maður fær tekjur sínar. Nike greiðir honum árlega 22 millj­ónir Banda­ríkja­dala, svo eitt­hvað sé nefnt.

Einföld og forvitnilegt umfjöllun.

Tekinn af lífi í Egyptalandi


Mohamed Morsi, sem kjör­inn var for­seti í Egypta­landi árið 2011 þegar Hosni Mobarak var að falla af stóli eftir 30 ára valda­tíma, hefur verið dæmdur til dauða ásamt hund­rað öðrum, fyrir að koma að því að láta lausa fjölda fanga úr fang­elsum, á svip­uðum tíma og Mobarak var að falla. Æðsti dóm­stóll Egypta­lands á þó eftir að taka loka­á­kvörðun um, hvort þessi nið­ur­staða neðra dóms­stigs haldi. Quartz fjall­aði ítar­lega um þessa merki­legu dóms­nið­ur­stöðu, sem mörgum þykir benda til þess að stjórn­kerfi Egypta­lands sé enn rotið.

Alvarleg mál sett í merkilegt ljós.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár