Greiðslur til þingmanna verða gerðar opinberar

Forsætis­nefnd Alþingis ætlar að gera greiðslur til þingmanna opinberar.

Forsætis­nefnd ætlar að opna sérstakan vef þar sem allar upplýsingar verða um greiðslur til þingmanna og þær verða rekjanlegar.

Frá þessu er greint á vef RÚV, en mikil umræða hefur skapast um ógagnsæi þegar kemur að greiðslum til þingmanna, einkum vegna aksturs­greiðslna til þeirra.

Stein­grímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, segir í viðtali við RÚV að það hafi verið samstaða um það í forsætis­nefnd um að gera opinberar allar greiðslur til þinga­manna, þar á meðal vegn endur­greiðslu á aksturs­kostnaði.„Það sem varð svo undir á fundinum fyrst og fremst var það hvernig Alþingi mun standa að upplýsinga­gjöf um greiðslur til þingmanna og endur­greiðslur á kostnaði í fram­haldinu og það var mjög góður andi í þeirri umræðu og mikil samstaða um að fara þar í verulegar breytingarog opna og opna inná þessi mál þannig að það ríki fullkomið gagnsæi um þau,“ segir Stein­grímur í viðtali við RÚV.

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins fékk 4,6 milljónir í fyrra í aksturs­kostnað, og voru greiðslur til hans þær mestu af þing­mönnum.

Katrín Jakobs­dóttir, forsætis­ráðherra, hefur sagt að skýra þurfi reglurnar og veita upplýsingar um greiðslurnar, og um það var meðal annars rætt á fundi forsætis­nefndar, eins og greint var frá á vef Kjarnans fyrr í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár