Úttekt gerð á endurgreiddum aksturskostnaði umfram keyrslu

For­sætis­nefnd fund­aði um end­ur­greiðslur útlagðs kostn­aðar til þing­manna í morgun. Nefndin hefur kallað eftir úttekt skrif­stofu­stjóra Alþingis á því hvernig lögum um þing­far­ar­kaup hefur verið háttað og þeim fram­fylgt.

For­sætis­nefnd fund­aði um end­ur­greiðslur kostn­aðar til þing­manna í morgun. Í sam­tali við Kjarnann segir Jón Þór Ólafsson nefnd­ar­maður og þing­maður Pírata og næstu skref séu þau að nefndin hefur kallað eftir úttekt skrif­stofu­stjóra Alþingis á því hvernig lögum um þing­far­ar­kaup hefur verið háttað og þeim fram­fylgt. Það er að segja, hvers vegna þing­mönnum sem keyrt hafa meira en 15 þús­und kíló­metra á eigin bíl hafi fengið end­ur­greiddan akst­urs­kostnað umfram þá keyrslu. Í reglum Alþingis sé kveðið á um að eftir svo mikla keyrslu skuli þing­menn taka bíla­leigu­bíl frekar en að keyra á sínum eigin þar sem það sé ódýr­ara.

[links]Jón Þór, sem lýsti því yfir fyrir helgi að hann hygð­ist leggja það til í nefnd­inni að máli Ásmundar Frið­riks­sonar, sem fékk í fyrra 4,6 millj­ónir í end­ur­greiddan akst­urs­kostnað, verði vísað til siða­nefndar Alþingis. Í siða­regl­unum er þing­mönnum gert að sjá til þess að end­ur­greiðsla fyrir útgjöld sé í full­komnu sam­ræmi við reglur sem settar eru um slík mál. Í regl­unum er einnig kveðið á um að alþing­is­menn skuli nýta þá aðstöðu sem þeim er veitt við störf sín með ábyrgum hætti og ekki nýta stöðu sína til per­sónu­legs ávinn­ings fyrir sig eða aðra.

[adspot]Jón Þór segir eðli­legt að skoða fyrst hvort að settum lögum hafi verið fram­fylgt áður en skoðað verði hvort brotið hafi verið gegn siða­reglum.

Jón Þór segir einnig að þar sem for­sætis­nefndin sé í raun stjórn þings­ins sé erfitt fyrir þá þing­menn sem í nefnd­inni sitja að í raun rann­saka sig sjálfa. Hann bendir þó á að hver sem er, þar með tal­inn almenn­ingur, geti sent inn erindi um að við­kom­andi sýn­ist þing­maður hafa brotið siða­reglur. „Þá verður for­sætis­nefnd að taka upp það erindi og vinna með það,“ segir Jón Þór.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár