Hróarskelduhátíðin: „Við viljum ekki þvinga konur upp á sviðið“

Aðeins 18 prósent þeirra hljómsveita sem troða upp á Hróarskeldu­hátíðinni í sumar, eru skipaðar konum. Danski frétta­miðillinn Information greinir frá þessarri athyglis­verðu staðreynd.

Jafnréttis­miðstöð Danmerkur, KVINFO, blés til óformlegs fundar vegna þessa á dögunum, þar sem staðan var skeggrædd. Þar fullyrti forstöðu­kona miðstöðvarinnar, Nina Groes, að það geti ekki staðist að karlar séu fimm sinnum betri en konur að búa til tónlist.

Samkvæmt áður­nefndri umfjöllun Information virðist lítil þróun eiga sér stað í tónlistar­senunni þegar kemur að jafnrétti. Eins og fyrr greinir eru konur í miklum minni­hluta á meðal flytjenda sem stíga munu á stokk á Hróarskeldu­hátíðinni þetta árið. Þær eru þó örlítið fleiri en í fyrra, þegar um 15 prósent flytjenda voru kvenkyns.

Endurspeglar stöðuna í tónlistarbransanum


Haft er eftir tón­list­ar­stjóra Hró­arskeldu­há­tíð­ar­innar, Anders Wahrén, að kynja­hlut­fallið end­ur­spegli stöðu mála í tón­list­ar­brans­anum. Konur verði ekki þving­aðar til að spila á hátíð­inni, þar ráði ein­ungis gæði tón­list­ar­innar um hverjum sé boðið að stíga á stokk. Þar skipti kyn, kyn­þáttur eða trú engu máli. Sjálfur seg­ist hann fylgj­andi öllum mögu­legum aðgerðum sem lúti að því að rétta hlut kvenna í tón­list­ar­brans­anum. „Í fyrra fengum við tvo með­limi hljóm­sveit­ar­innar Pussy Riot til að halda fyr­ir­lestur á hátíð­inni sem lukk­að­ist afar vel. Það kemur vel til greina að gera eitt­hvað svipað aftur núna, en ekk­ert hefur þó verið ákveðið í þeim efnum,“ hefur Information eftir tón­list­ar­stjóra Hró­arskeldu­há­tíð­ar­innar.

Anders Wahrén, tónlistar­stjóri Hróarskeldu­hátíðarinnar. Mynd: Julie Hjort

Anders Wahrén, tónlistarstjóri Hróarskelduhátíðarinnar. Mynd: Julie Hjort
Anders Wahrén, tón­list­ar­stjóri Hró­arskeldu­há­tíð­ar­innar. Mynd: Julie Hjort

Henrik Marstals, tónlistar­maður og rithöfundur, sem hefur hvað mest látið sig varða ójafnt kynja­hlutfall í tónlistar­bransanum, segir í umfjöllun Information: „Það eru bara nokkur róttæk dagblöð sem eru á þeirri skoðun að við séum á rangri braut í þessum efnum, og þetta sé eitthvað sem beri að taka alvarlega. Hróarskeldu­hátíðin er á mörgum sviðum frumkvöðull og fyrirmynd annarra tónlistar­hátíða og gæti vakið vitund annarra hátíða með því að setja þetta málefni á oddinn.“

Hróarskeldu­hátíðin hefur í gegnum tíðina stært sig af samfélagslegri ábyrgð sinni, hvort sem kemur að kyni, kynþáttum eða mann­réttindum.

Hér má sjá plakat hátíðarinnar þar sem er búið að taka út karlkyns flytendur. Í umfjöllun Information er plakatið gagnvirkt.

roskilde-festival-2015-poster-edit
rosk­ilde-festi­val-2015-poster-edit
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár