Norðmenn hætta FM-útvarpsútsendingum... fyrir fullt og allt

FM-útvarps­útsendingum verður hætt í Noregi árið 2017, en þar með verða Norðmenn fyrsta þjóðin til að skrúfa alveg fyrir þess háttar útvarps­útsendingar. Norski frétta­miðillinn Radio.no greinir frá málinu. Í staðinn færast útvarps­útsendingar alfarið yfir á stafrænt form, en ráðist verður í breytinguna í Noregi í þrepum, þar sem byrjað verður í Norður­hluta landsins.

Tilkynnt var um ákvörðunina að skrúfa alfarið fyrir FM-útsendingar, eftir tæp tvö ár, á fimmtudaginn. Ákvörðunin á svo sem ekki að koma neinum á óvart því flestir Norðmenn hlusta í dag á uppáhalds útvarps­stöðvarnar sínar með stafrænum hætti. Þróunin hefur átt sér stað undan­farin ár, en 11. janúar árið 2017 verður hafist handa við að ljúka yfir­færslunni fyrir fullt og allt. Í dag er hægt að hlusta stafrænt á 22 norskar útvarps­stöðvar, á meðan einungis fimm útvarps­stöðvar senda út á landsvísu með FM tækninni.

Eins og áður segir verður byrjað að slökkva á FM-útvarps­sendingum í Norður­hluta Noregs þann 11. janúar árið 2017, en slökkt verður á síðasta FM-útvarps­sendinum þann 13. desember sama ár.

Stærstu útvarps­stöðvar Noregs, ríkis­útvarpið NRK meðtalið, samþykktu að ráðst í breytinguna með hraði, að því gefnu að svæðis­bundnar lokanir skekki ekki samkeppnis­stöðu þeirra tíma­bundið.

Eins og áður segir verða Norðmenn fyrsta þjóðin til að loka alfarið fyrir FM-útvarps­útsendingar, en þó nokkur lönd í Evrópu og Suðaustur-Asíu eru í samskonar ferli, og hafa valið stafræna tækni undir dreifingu útvarps­efnis til framtíðar.

Stafræn útvarps­þjónusta er talin geta framlengt líf útvarpsins um ókomin ár. Þannig geti útvarps­stöðvar betur komið til móts við þarfir og smekk hlustenda og brugðist betur við örum breytingum sem verða á fjölmiðla­neyslu notenda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár